Neymar ákvað að halda veislu í gær þegar hann bauð leikmönnum PSG í afmæli sitt, Neymar fagnar 28 ára afmæli sínu í vikunni.
Neymar leigði skemmtistað í miðborg Parísar þar sem stjörnur liðsins og fleiri mættu.
Kylian Mbappe mætti seint á svæðið en Tomas Tuchel, stjóri liðsins var ekki sáttur með að Neymar væri með þetta partý. Aðeins þrír dagar eru í leik við Nantes. ,,Þetta er truflandi og fólk gæti haldið að okkur sé ekki alvara,“ sagði Tuchel.
Memphis Depay leikmaður Lyon var einn af þeim sem mætti á svæðið en gestir áttu að mæta í hvítum fötum.