Björn Teitsson, meistaranemi í borgarfræðum við Bauhaus Universität-Weimar í Þýskalandi, segir í pistli sem birtist á Vísi að það sé einfaldlega rugl hvernig íslenskir foreldrar skutla börnum út um allt. Hann segir að ekki nóg með að það sé slæmt fyrir umhverfið þá skaði það ferðasjálfstæði og umhverfisgreind barna. Stundum er talað um að öll þessi skutl séu að búa til nýja kynslóð aumingja, með öðrum orðum aumingjavæðing.
„Í Reykjavík og nágrenni eru bílferðir um 75% allra ferða. Það er augljóslega allt of mikið, og mun hærra hlutfall en annars staðar þekkist, hvort sem við miðum við Norðurlönd eða Evrópu. Þetta á við um staði í Evrópu sem eru fjölmennari, fámennari. Sem eru staðsettir í mildara loftslagi, en einnig þar sem loftslag er enn erfiðara, kaldara og miskunnarlausara. Staðan er óásættanleg, hvernig sem á það er litið,“ segir Björn.
Hann telur svo upp nokkrar staðreyndir um málið. „Hér eru nokkrar staðreyndir. Um helmingur allra bílferða er um 2 km ferðir eða styttri. Það er svipuð vegalengd og að labba frá Hlemmi niður að höfn, eða frá Hlemmi Mathöll til Granda Mathallar. Það er vegalengd sem hægt er að labba á 20-25 mínútum fyrir heilbrigða manneskju á venjulegum til hóflegum hraða. Það er vegalengd sem hægt er að hjóla á 5-10 mínútum. Árið 2017 voru 87.432 skráð lögbrot á Íslandi. Þar af: 69.874 umferðarlagabrot. Þetta þýðir að umferðarlagabrot eru 79,92% allra skráðra brota,“ segir Björn og bætir við:
„En það er ekki allt. Rannsóknir sýna að um 70 prósent ökumanna á venjulegum degi brjóta umferðarlög á einn eða annan hátt, án þess að lögreglan hafi af því vitneskju eða afskipti. Þá erum við að tala um brot eins og að tala í síma á meðan akstri stendur, eða jafnvel senda textaskilaboð á meðan akstri stendur. Brot sem eru óþolandi algeng eru svo ökumenn sem skilja bílana sína eftir upp á gangstétt, þannig að gangandi eða hjólandi komast hreinlega ekki leiðar sinnar án þess að setja líf sitt í hættu.“
Björn bendir á að nær öll verkefni lögreglunar snúast um umferðina. „Þarna eru brot eins og hraðakstur (sem flest fólk stundar á hverjum degi), sleppa stöðvunarskyldu, svo ekki sé rætt um ölvunar-eða fíkniefnaakstur. Öll þessi brot setja fólk í lífshættu á hverjum einasta degi. Miðað við að aðeins 30% umferðarlagabrota fá raunveruleg afskipti lögreglu, þýðir það að raunverulega eru brotin líklega um 230.000 á hverju ári. Spáið í hvað það myndi gera fyrir þjóðarbúið ef við fengjum að njóta allra þeirra fjármuna sem þær sektir gætu skilað?,“ spyr Björn.
Hann segir Íslendinga meðvirka hvað þetta varðar: „En nú, án þess að fara út í tölur um mannfall sem ökumenn bíla valda á hverju ári, eða þeirra líkamlegu áverka sem þeir skilja eftir sig, sem veldur oft varanlegum skaða, fötlun eða hlutfallslegri örorku fyrir lífstíð, ræðum þá aðeins meðvirkni okkar með þessu rugli, og sérstaklega meðvirkni stjórnvalda og lögreglu.“
Björn segist nýlega hafa rætt þetta vandamál við foreldra búsetta í Vesturbænum. „Nýlega stóð ég í umræðum við foreldra sem eru búsettir í Vesturbæ Reykjavíkur, einu þéttbyggðasta hverfi höfuðborgarsvæðisins, með eitt besta hlutfall fólks sem notar umhverfisvæna ferðamáta, altso, aðra ferðamáta en einkabílinn. Umræðurnar snerust um, í stuttu máli, hvort það væri ekki furðulegt að vantreysta stálpuðum börnum til að ganga í tómstundir eða á íþróttaæfingar,“ segir Björn.
„Nú er ég nokkuð viss um að sú kynslóð sem nú stýrir samgönguráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, Vegagerðinni, lögreglu, Reykjavíkurborg og nágrannasveitarfélögum, kannist vel við – rétt eins og ég – að labba, hjóli, eða taki almenningssamgöngur í tómstundir og á íþróttaæfingar. Það gerði ég til dæmis frá 7 ára aldri seint á 9. áratug síðustu aldar, allt fram til loka 10. áratugar sömu aldar. Þetta kannast flestöll við sem eru á mínum aldri eða eldri.“
Hann bætir enn fremur við þetta að hann hafi nýverið heyrt að foreldrar skutli börnum sínum svo mikið því þau hafi áhyggjur af þeim í umferðinni. „Nýlega heyrði ég sjónarmið foreldra sem treysta sér hreinlega ekki til að leyfa börnum sínum að labba á æfingar eða í tómstundir, því umferðarlög eru stöðugt brotin, ökumenn aka of hratt, þeir fara yfir á rauðu ljósi og horfa ekki í kringum sig, jafnvel að senda textaskilaboð þegar þeir ættu að vera að hemla á gönguljósi fyrir börnum,“ segir Björn.
Hann biður fólk um að hafa í huga allt stressið sem myndi sparast. „Ef þetta er sú raunverulega staða sem upp er komin, sem ég efast reyndar ekki um, þá verðum við að staldra við. Það þýðir að kerfið okkar er bilað, það þýðir að við þurfum að gera breytingar og laga það. Annað hvort eru umferðarlög til að þeim sé hlýtt og framfylgt, eða ekki. Hugsið ykkur, fólk er beinlínis nauðbeygt til að stunda óþarfa akstur, ferðir sem eru innan við 1-2 km að lengd, því lögum er ekki framfylgt. Getið þið ímyndað ykkur vistsporið og stressið sem sparast ef farið væri í alvöru átak til að leiðrétta þetta rugl? Heilsuna, ferðasjálfstæði og umhverfisgreind barna sem verður til, ef farið væri í alvöru átak til að leiðrétta þetta rugl? Því það er það sem þetta er, þetta er algert rugl,“ segir Björn.
Að lokum skorar hann á stjórnvöld að gera betur og koma þessum málum í réttan farveg. „Ég skora á samgönguráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, Vegagerðina, lögreglu, Reykjavíkurborg og nágrannasveitarfélög, til að gera betur. Ekki aðeins í Vesturbæ heldur um allt höfuðborgarsvæðið og allt land. Það er lágmarksréttur barna að mega labba á æfingu án þess að eiga á hættu að verða ekið niður af bíl á leið sinni. Það er lágmarksréttur foreldra að neyðast ekki til að skutla börnum á bíl vegalengdir sem þau geta hæglega gengið.“