,,Það er ekki möguleiki sem ég skoða,“ sagði Zinedine Zidane um það hvort Gareth Bale gæti farið frá félaginu til Tottenham í dag.
Times sagði frá því í dag að Tottenham væri að reyna að fá Bale í dag, á lokadegi félagaskiptagluggans.
Bale fór frá Tottenham til Real Madrid árið 2013 fyrir 85 milljónir punda en hann þénar 500 þúsund pund á viku í dag.
Sá samningur sem Bale er á er stærsta ástæða þess að hann er enn í herbúðum Real Madrid en Zinedine Zidane hefur viljað losna við hann.