fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Dorrit og klónið af Sám skemmtu sér í snjónum – „Ást við fyrstu sýn“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 21. desember 2019 22:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Ragnar Grímsson deildi á twitter sætu myndskeiði af eiginkonu sinni Dorrit að leika við hvolpinn Samson í snjónum. Samson er klón af Sám, ástkærum hundi Dorritar sem féll frá í janúar á þessu ári. RÚV vakti athygli á færslunni.  Myndskeiðið mun hafa verið tekið upp aðeins örfáum mínútum eftir að Dorrit fékk hvolpinn afhentann.

„Fyrsta upplifun Samsons af snjónum aðeins nokkrum mínútum eftir að hann og Dorrit hittust í fyrsta sinn. Ást við fyrstu sýn,“ skrifar Ólafur með færslunni.

Af myndskeiðinu má ekki annað sjá en að Dorrit og Samson komi strax mjög vel saman. Hvolpurinn virðist í það minnsta taka Dorrit sinni fagnandi.

Ákvörðun Dorritar að klóna hundinn sinn hefur fengið á sig nokkra gagnrýni. Einkum hefur verið bent á að þar sem klónunin sé virkilega dýrt sé um að ræða nokkuð sem aðeins vel stæðum sé fært, en á meðan séu fullt af hundum þarna úti sem vanti eigendur.

Nenniru í alvörunni ekki að láta eins og þú sért í Kardashian fjölskyldunni. Eða Elon Musk. Elítu rugl,“ skrifaði Eva H. Baldursdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi varaborgarfulltrúi, á Facebook um málið.

Egill Helgason fjölmiðlamaður spurði á Facebook: „Er þetta ekki frekar ógeðslegt?“

Heiða B. Heiðarsdóttir tók undir með Agli.  „Æjú, mér finnst það. Líka bara innilega plebbalegt og hallærislegt.“

Árni Snævarr fyrrverandi fréttamaður hefur einnig tjáð sig um málið: „Ólafur Ragnar hlýtur að vera grænn af öfund ef hún klónar hann ekki líka.“ Pétur Örn Guðmundsson tónlistarmaður tók í svipaðan streng og sagði: „Bara svo lengi sem hún klónar ekki Ólaf.“

Þar sem persónuleiki hunda ræðst ekki af erfðaefni einu saman heldur líka umhverfi þá er óvíst hvort að Samson verði sami hundurinn og Sámur heitinn. Tíminn mun leiða það í ljós. En þangað til virðist Dorrit að minnsta kosti fagna nýjum félaga og hann sömuleiðis henni.

Sjá einnig: 

Eva hneyksluð á Dorrit – „Elítu rugl“

Hundaklón Dorritar kostar sex milljónir – Ekki öruggt með árangurinn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast
Fréttir
Í gær

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Auka myndavélavöktun á grenndarstöðvum SORPU

Auka myndavélavöktun á grenndarstöðvum SORPU
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingar fengu tæpa 13 milljarða í fjárstyrki: „Þetta eru svakalega háar fjárhæðir“

Útlendingar fengu tæpa 13 milljarða í fjárstyrki: „Þetta eru svakalega háar fjárhæðir“