

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú innbrot og þjófnað sem átti sér stað í umdæminu á dögunum.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að íbúi á Suðurnesjum hafi tilkynnt til lögreglu síðastliðinn föstudag að brotist hefði verið inn hjá honum og peningaskáp stolið. Hann hafði dvalið erlendis en þegar hann kom heim sá hann verksummerki um innbrot.
Að sögn lögreglu var búið að spenna upp glugga og lágu verkfæri sem eru talin hafa verið notuð til þess við húsið. Þá var peningaskápur sem boltaður hafði verið við vegg í húsnæðinu horfinn.
Lögregla er málið til rannsóknar sem fyrr segir.