Dagný Magnea Harðardóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri Ráðhússins á Akureyri og starfsmaður skrifstofu borgarstjórnar í Reykjavík, er látin. Dagný var yngst þriggja systra. Systur hennar eru Jenný Kamilla og Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Dagný Magnea lést þann 20. september 2019 á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Fjölmargir minnast hennar bæði á Facebook og í minningargreinum í Morgunblaðinu. Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata skrifaði samúðarkveðju á Facebook-síðu systur hennar, Oddnýju og segir: „Dagný var yndisleg kona og dýrmætt að fá að kynnast henni.“
Oddný sjálf skrifar fallega minningargrein í Morgunblaðið um systur sína. „Hún hét Dagný Magnea og var litla systir mín. Ég var fjögurra ára þegar hún fæddist. Dæja var hún kölluð, hláturmild og glaðlynd frá fyrsta degi og þannig auðgaði hún líf okkar allra, jafnvel á meðan drungi skilnaðar foreldra okkar var yfir heimilinu og hún yngst og viðkvæmust. Mig grunaði ekki þá að hún ætti eftir að verða sú sem ætíð veitti mér stuðning og skjól með skýrri sýn á tilveruna og góðum ráðum á erfiðum stundum. Dagný systir mín var sú sem ég gat alltaf reitt mig á, líka þegar að mamma okkar dó langt fyrir aldur fram. Og raunar var hún öllum sínum nánustu ómetanleg stoð og stytta,“ skrifar Oddný.
Hún segir enn fremur að hún hafi einungis starfað í tvo mánuði hjá Reykjavíkurborg þegar hún greindist með krabbamein. „Dæja var orðin tveggja barna móðir þegar hún lét drauminn um framhaldsnám rætast. Svo fór að hún lauk háskólaprófi með glæsibrag og fékk starf þar sem menntun hennar og mannkostir nutu sín. Dagný hóf störf hjá Reykjavíkurborg árið 2018 og var aðeins búin að vinna hjá borginni í um tvo mánuði þegar að hún greindist með krabbamein. Henni líkaði nýja vinnan vel og var ánægð með flutninginn til Reykjavíkur. Við höfðum hugsað okkur gott til glóðarinnar og lagt á ráðin um enn fleiri samverustundir þar sem stutt væri að fara bæði á milli vinnustaða okkar og heimila. En þá greip illvígt krabbamein inn í og nú verða samverustundirnar ekki fleiri,“ skrifar Oddný.