

Frá því í gærkvöldi þar til í morgun voru 81 mál bókuð hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar af voru þrjú útköll vegna heimilisofbeldis.
Miðsvæðis þurfti lögregla að sinna útköllum vegna þjófnaðar úr matvöruverslun, en þjófurinn hafði skilað vörunum og stungið af frá vettvangi áður en lögregla mætti. Barn skall með höfuð í gólf í heimahúsi en reyndist slysið ekki eins alvarlegt og í fyrstu var talið. Óprúttinn aðili stal smámynt úr sameign fjölbýlishús og par var í ryskingum fyrir utan verslun.
Alvarlegri voru útköll þar sem lögregla var kölluð að Vesturbæ vegna heimilisofbeldis. Á tónleikahátíðinni Októberfest var tilkynnt að ung kona hefði fengið högg í andlitið og væri að líkindum nefbrotin. Lögreglu tókst með aðstoð öryggisvarða hátíðarinnar að finna gerandann. Einnig var lögregla kölluð til vegna slagsmála á sömu hátíð sem voru þó yfirstaðin þegar lögreglu bar að garði.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á slysadeildinni í Fossvogi vegna ógnandi manns, eins var lögregla kölluð út í matvöruverslun þar sem maður var með læti og grunaður um hnupl, og einnig óskað dyravörður eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem var til vandræða á skemmtistað.
Lögregla var einnig kölluð út í Garðabæ vegna heimilisofbeldis og synti útkalli á vínveitingastað þar sem maður hafði fengið billjarðkuða í augað.
Bílunum HZX79, Ford Transit Connect, og Audi A6 Limousine 2015, brún að lit. GKG78, var stolið.
Einnig hafði lögregla af ölvuðu fólki sem var til vandræða, ölvuðum og réttindalausum ökumönnum og einnig var tilkynnt um dáinn kött í Grafarvogi.