fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
Fréttir

Guðni gáttaður: Lambakjöt flutt til Íslands yfir hálfan hnöttinn – „Íslenskir neytendur kæra sig ekki um þetta stríð“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. ágúst 2019 10:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég veit og finn að íslenskir neytendur kæra sig ekki um þetta stríð og biðja um íslenskt lamb á diskinn sinn,“ segir Guðni Ágústson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Í greininni fjallar Guðni meðal annars um nýsjálenska lambahryggi sem til dæmis má finna í verslunum Bónus um þessar mundir. Guðni nefnir að hryggirnir fari rúmlega sautján þúsund kílómetra leið frá Nýja-Sjálandi áður en þeir koma í verslanir hér á landi.

„Nú hafa menn áróðurs og græðgi afrekað það að flytja lambakjöt frá Nýja-Sjálandi til Íslands yfir hálfan hnöttinn. Hér kjöftuðu upp skortstöðu þeir Ólafur Stephensen og Andrés Magnússon og landbúnaðarráðherra gaf þeim fyrirheit um að við þessu yrði brugðist, fyrirheit sem hann varð að hætta við og svíkja þá um, hvað eftirgjöf á tollum varðar. Málið strandaði í ríkisstjórninni,“ segir Guðni.

Hann bendir á að umræða um matarsóun og kolefnisfótspor hafi verið fyrirferðarmikil að undanförnu, enda óttast margir afleiðingar loftslagsbreytinga sem þegar eru farnar að hafa áhrif.

„Við eigum á Íslandi einstaka auðlind í villibráð sem gengur í guðsgrænni náttúrunni allt sumarið, blessuð lömbin, og flest heimili vilja alls ekki að lambakjöt sé flutt hingað erlendis frá og bændurnir eru gæslumenn byggðanna og gera þær blómlegar. Íslenskir bændur þjóna sínum neytendum einstaklega vel með heilbrigðar matvörur og margir segja að hvergi í veröldinni setjist fjölskyldan að jafn öruggu matborði og hér,“ segir Guðni sem bendir á auglýsingar þess efnis að nú séu fáanlegir frosnir hryggir frá Nýja-Sjálandi. Auglýsingunni fylgir að ríkið fái 40 prósent af kjötinu í sinn hlut.

„Ég vil biðja ágætan umhverfisráðherra, Guðmund Inga Guðbrandsson, að reikna út kolefnisfótsporið af því að flytja hingað 100 tonn af lambakjöti frá Nýja-Sjálandi sem mun enn fremur valda matarsóun. Ég veit og finn að íslenskir neytendur kæra sig ekki um þetta stríð og biðja um íslenskt lamb á diskinn sinn,“ segir Guðni sem segir að þarna sé verið að gera stór mistök. Kaupmenn á landinu muni ekki vilja selja annað en íslenska lambið.

„Ég skora á bændur, neytendur, kaupmenn og sláturleyfishafa að hefja þegar undirbúning að samvinnu til að svona gerist aldrei aftur. Gerum kröfu um að allt kjöt sé upprunamerkt og þessu nýsjálenska kjöti verði ekki umpakkað og selt sem íslenskt, í raun þannig smyglað inn á markaðinn. Ég bið umhverfisráðherra að blanda sér í þessa umræðu og láta reikna út kolefnissporið af svona gerræði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Andri bendir á hatrið sem Charlie Kirk boðaði – „Hugnaðist til dæmis ekki að sitja í flugvél með svörtum flugmanni“

Andri bendir á hatrið sem Charlie Kirk boðaði – „Hugnaðist til dæmis ekki að sitja í flugvél með svörtum flugmanni“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“
Fréttir
Í gær

Gauti telur að fíkniefni ættu að fást í sérverslunum – „Ekki að segja að það eigi að vera aðgengilegt í matvöruverslunum eins og Melabúðinni“

Gauti telur að fíkniefni ættu að fást í sérverslunum – „Ekki að segja að það eigi að vera aðgengilegt í matvöruverslunum eins og Melabúðinni“
Fréttir
Í gær

Formaður Afstöðu vill náða Kourani strax – Ástæðan er einföld

Formaður Afstöðu vill náða Kourani strax – Ástæðan er einföld