fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
Fréttir

Hafsteinn kýldi konu á almannafæri og skildi hana eftir nakta í kuldanum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 26. ágúst 2019 17:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hafsteinn Oddsson var í sumar  dæmdur í sex ára fangelsi fyrir hrottalega líkamsárás gegn konu sem hann framdi í ágúst árið 2016. Dómurinn var birtur á vef dómstólanna í dag en dómurinn var kveðinn upp 23. júlí.  Líkamsárásin var framin í Vestmannaeyjum og dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands.

Hafsteini var gefið að sök að hafa slegið konuna í andlitið fyrir utan skemmtistaðinn Lundann í Vestmannaeyjum, svo hún féll við. Hann sló hana síðan ítrekað aftur og sparkaði í hana. Þá klæddi hann konuna úr fötunum og skildi hana eftir nakta á almannafæri. Lá hún mikið slösuð og bjargarlaus í götunni.

Konan hlaut brot í hægri augntóft, mar og bólgur á augn- og kinnsvæðum, opinn skurð fyrir ofan vinstra auga sem sauma þurfti saman með fimm sporum, mar á nefi og höku, blóðnasir og blóð í munni, skrapsár aftan á hnakka, roða og skrapsár yfir brjósthrygg, roða og eymsli ofarlega á vinstri rasskinn og ofkælingu. Talið var að konan hefði ekki lifað af nóttina ef henni hefði ekki verið komið til bjargar en líkamshiti hennar fór langt niður. Ennfremur var hún afmynduð í andliti eftir árásina.

Hafsteinn var sem fyrr segir dæmdur í sex ára fangelsi fyrir árásina. Þá var hann dæmdur til að greiða þolanda árásarinnar þrjár og hálfa milljón króna í skaðabætur.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum
Fréttir
Í gær

Skagfirðingar óttast að tapa á sparnaðaráformum Ingu

Skagfirðingar óttast að tapa á sparnaðaráformum Ingu
Fréttir
Í gær

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið