Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, er mikill aðdáandi Jose Mourinho sem er án félags þessa stundina.
Mourinho ræddi mögulega sigurvegara í ensku úrvalsdeildinni nýlega og nefndi þar Tottenham.
Mourinho nefndi Tottenham, Manchester City, Liverpool og varalið Manchester City.
,,Ég elska Mo. Við vitum öll hversu klár hann er, hann er svo kaldhæðinn stundum. Þess vegna er hann einn besti stjóri heims,“ sagði Pochettino.
,,Ég virði hans skoðun og er þakklátur. Það er mikilvægt að stjóri eins og Mourinho hafi trú á liðinu þínu.“
,,Við trúum á okkur sjálfa en þetta hrós gefur okkur aðeins meiri trú að sjálfsögðu.“