Nú rétt í þessu var dregið í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þar drógust stelpurnar í Breiðablik á móti Sparta Prag frá Tékklandi.
Blikastelpur komust örugglega í gegnum undankeppnina á dögunum en þær unnu eins og flestir vita sinn riðil í Sarajevo á dögunum með glæsibrag.
Fyrri leikurinn fer fram á Kópavogsvelli þann 11. eða 12. september næstkomandi. Seinni leikurinn fer svo fram í í Prag þann 25. eða 26.september.