fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Fréttir

Íslensk kona reið út í Costco: „Hvert tilkynnir maður falskar merkingar?“

Þyngdin var dálítið önnur en innihaldslýsingin sagði til um

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 29. maí 2017 16:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þúsundir Íslendinga hafa lagt leið sína í Costco undanfarna daga og hafa margir þeirra deilt reynslu sinni í heitasta Facebook-hópi landsins í dag, Keypt í Costco.

Mynd: Skjáskot menn.is
Falskar merkingar Mynd: Skjáskot menn.is

Í Costco er hægt að nálgast allt milli himins og jarðar, til dæmis ávexti og grænmeti í ríkulegu úrvali. Ein kona setti skemmtilega færslu inn í hópinn þar sem hún kvartaði undan „fölskum merkingum“ í Costco. Í raun var um hálfgert lúxusvandamál að ræða þar sem konan fékk meira af jarðarberjum og hindberjum en hún bað um.

Menn.is vöktu fyrst athygli á þessu.

„Vildi bara láta vita…Er alveg brjáluð! Keypti 2 jarðaberjaöskjur, 1 hindberja og 1 vatnsmelónu. Vigtaði allt saman. Jarðarberin áttu að vera 910 grömm samkvæmt merkingum, voru 1100 grömm og 1.150 grömm. Hindberin áttu að vera 320 grömm en voru næstum 400 grömm (um 390). Og vatnsmelónan 6 og hálft kíló, kostaði samt bara 926 krónur. Hvert tilkynnir maður falskar merkingar?“ spurði konan en að sjálfsögðu fylgdi broskall með.

Þetta virðist ekki vera neitt einsdæmi því fleiri hafa bent á það að öskjurnar af jarðarberjum séu þyngri en þær eru auglýstar. Þannig birti einn notandi síðunnar í morgun mynd af vog með Driscolls-jarðarberjum ofan á. Auglýst þyngd var 907 grömm en þegar á hólminn var komið vó askjan 1.144 grömm. Þá sagði önnur kona frá því í gær að jarðarberjaaskjan hefði verið 1.363 grömm og kirsuberjaaskjan 1.120 grömm. „Við erum að tala um að ég fékk rúmt hálft kíló af berjum aukalega,“ sagði konan, kampakát.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Banaslys við Hvítá – 10 ára drengur lést

Banaslys við Hvítá – 10 ára drengur lést
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöldin yfir Ymi Art framundan – Ákærður fyrir að hafa myrt móður sína með 22 hnífstungum

Réttarhöldin yfir Ymi Art framundan – Ákærður fyrir að hafa myrt móður sína með 22 hnífstungum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dómur yfir Begga blinda fyrir kynferðislega áreitni gegn þremur konum staðfestur – „Mig hefur kannski langað í eitthvað kynlíf“

Dómur yfir Begga blinda fyrir kynferðislega áreitni gegn þremur konum staðfestur – „Mig hefur kannski langað í eitthvað kynlíf“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Alvarlegt slys við Hvítá

Alvarlegt slys við Hvítá