fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Líkur á þrumum og hagléljum á morgun

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 3. júlí 2019 14:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt Veðurstofu Íslands mega íbúar á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og sunnanverðu hálendinu búast við hagléljum og eldingum síðdegis á morgun.
„Búast má við skúradembum um landið suðvestanvert og á hálendinu síðdegis á morgun og líkur á stöku hagléljum eða eldingum,“ segir á vef Veðurstofu Íslands.
Páll Ágúst Þórarinsson, veðurfræðingur,  segir í samtali við fréttastofu RÚV að hann reikni að veðrið nái hámarki um hádegi eða kaffileytið og gangi hratt yfir.

Um veðurhorfur næsta sólarhring segir einnig á vef Veðurstofu Íslands:

„Suðaustlæg eða austlæg átt 5-13 m/s og rigning eða súld um sunnan og vestanvert landið. Bjart að mestu norðaustantil, en þykknar upp síðdegis með dálítilli úrkomu í kvöld og nótt. Skúrir og líklega hellidembur á morgun, einkum suðvestanlands og á hálendinu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustantil, en heldur svalara á morgun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Magga Stína svarar Rósu fullum hálsi: „Annað hvort segir þú viljandi ekki satt og rétt frá eða þú varst ekki á staðnum”

Magga Stína svarar Rósu fullum hálsi: „Annað hvort segir þú viljandi ekki satt og rétt frá eða þú varst ekki á staðnum”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Rannsakað hvort feðginin hafi verið stungin meðan þau sváfu

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Rannsakað hvort feðginin hafi verið stungin meðan þau sváfu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur