fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Fréttir

Ragnar sakfelldur fyrir að keyra á Hreggvið: „Mesta mildi var að ekki hlaust stórfellt líkamstjón af árásinni eða jafnvel bani“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 2. júlí 2019 14:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Valur Björgvinsson hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi, og til greiðslu 700 þúsund króna í  miskabætur, fyrir að aka á nágranna sinn, Hreggvið Hermannsson í desember 2017.

Ragnar Valur er bóndi að Langholti 2 í Árnessýslu og Hreggviður er bóndi að Langholti 1B. Hafa þeir lengi átt í harðvítugum deilum um eignarrétt yfir heimreið og landi þar í kring. Hreggviður, sem taldi sig eiga heimreiðina, hafði ítrekað gripið til þess að loka heimreiðinni, svo sem með því að strengja gaddavír og rúlluplast milli tveggja steina við innkeyrsluna.

Sjá einnig: Nágrannaerjur ná nýjum hæðum: „Hann reyndi að drepa mig“

„Þau hafa þann sið að eyðileggja girðinguna og taka hana með sér og það var akkúrat það sem gerðist þarna,“ sagði Hreggviður í samtali við DV í janúar 2018 og vísar þar til Ragnars og eiginkonu hans, Fríðar Sólveigar Hannesdóttur.

Myndband af árásinni

Í aðdraganda árásarinnar koma Ragnar og Fríður akandi að girðingunni sem Hreggviður hafði reist í heimreiðinni umdeildu. Fríður fer út úr bifreiðinni og tekur girðinguna niður. Á myndbandi sem náðist af árásinni sést Fríður koma í mynd með gaddavírinn og plastið úr girðingunni í eftirdragi.  Þá sést Hreggviður koma með hamar í hendi og hlaupa á eftir Fríði. Hann stígur á plastið, en Fríður kippir því þá að sér. Hreggviður beygir sig þá niður og krækir í plastið með hamrinum, Fríður togar þá gaddavírinn að sér. Þá ekur Ragnar bifreiðinni í átt að Hreggviði. Hreggviður stendur með plastið í fanginu og snýr baki við bifreiðinni þegar Ragnar keyrir aftan á læri Hreggviðar sem lendir á vélarhlífinni og fætur hans takast á loft.

Hreggviður lendir svo á fótunum og slær þá með hamrinum á miðja vélarhlífina á bifreið Ragnars. Þá ekur Ragnar áfram og gefur í. Hreggviður er með hendur á vélarhlífinni og hörfar á aftur á bak undan bílnum.  Ragnar gefur þá í og Hreggviður kastar sér upp á vélarhlíf bílsins.

„Sekúndu síðar hefur ákærði tekið krappa hægri beygju. Bifreiðin rennur til í beygjunni og snjór og drulla spýtist aftur undan bifreiðinni. Brotaþoli fellur af vélarhlífinni vinstra megin og má sjá hann fyrst sem þúst fyrir aftan vinstra framdekk bifreiðarinnar. Síðan berst brotaþoli meðfram vinstri hlið bifreiðarinnar og verður ekki annað séð en að afturendi bifreiðarinnar og vinstra afturhjól lendi á brotaþola sem blasir næst við sem þúst aftan við bifreiðina hægra megin í því að ákærði hefur lokið hinni kröppu hægri beygju.“

Merkilega hress

Í samtali við DV sagði Hreggviður að hann hefði ekki gert sér grein fyrir áverkum sínum fyrr en nokkru eftir árásina.  „Fyrst um sinn var ég merkilega hress og kenndi mér ekkert sérstaklega meins. Líklega hefur adrenalínið haldið manni gangandi. Síðan leið smá tími og þegar kom að því að setjast við kvöldmatarborðið þá leið ég bara út af yfir matnum,“ sagði Hreggviður. Heimilisfólk hringdi þá umsvifalaust í sjúkrabíl og var Hreggviður færður til aðhlynningar. „Ég var sem betur fer óbrotinn en mjög marinn. Þessi árás náðist á upptöku sem lögregla hefur undir höndum.“  Hreggviður.
Ragnar bar því við fyrir dómi að hann hefði aðeins verið að bregðast við til að vernda Fríði, sem Hreggviður hefði gert sig líklegan til að ráðast á með hamri. Dómari hafnaði því að um neyðarvörn hefði verið að ræða. Þótti dómara ljóst af myndbandsupptökum að Fríður hefði ekki haft neina ástæðu til að óttast um líf sitt,  hvað þá að Ragnar hefði haft um eitthvað að óttast fyrir hennar hönd. Þarna hefði Ragnar ráðist gegn Hreggviði með vélknúnu ökutæki og Hreggviður lítið geta gert sér til varnar. Skipti þá engu hvað á undan hefði gengið varðandi samskipti Hreggviðar og Ragnars. Engin fyrri samskipti gætu réttlætt beitingu ofbeldis.
„Kærði sýndi af sér ófyrirleitni og árás hans var sérstaklega hættuleg enda gerð með vélknúnu ökutæki sem telja verður stórhættulegt í aðstæðum brotaþola umrætt sinn. Ítrekað skal að mesta mildi var að ekki hlaust stórfellt líkamstjón af árásinni eða jafnvel bani.“
„Þó svo fyrir liggi í máli þessu að mikið hafi gengið á í samskiptum ákærða og brotaþola um nokkurt skeið og kærur hafi gengið á báða bóga réttlætti það ekki beitingu ofbeldis af hálfu ákærða umrætt sinn.“
Töluverðir áverkar voru á Hreggvið eftir árásina

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þórdís Kolbrún sár út í Ragnar: „Ákaflega ógagnlegt og ámælisvert”

Þórdís Kolbrún sár út í Ragnar: „Ákaflega ógagnlegt og ámælisvert”
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Lífið í fangelsinu enginn dans á rósum fyrir morðingjann

Lífið í fangelsinu enginn dans á rósum fyrir morðingjann