fbpx
Sunnudagur 07.september 2025
Fréttir

Maður ógnaði fólki með hækju

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 8. júní 2019 07:53

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um hálfeittleytið í nótt var maður í annarlegu ástandi handtekinn í miðborginni eftir ítrekuð afskipti lögreglu en hann hafði verið að ógna fólki og berja frá sér með hækju sem hann hafði meðferðis. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu þar til ástand hans lagast.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu, ásamt þessu:

Klukkan hálfþrjú í nótt var maður handtekinn í miðbænum grunaður um eignaspjöll en maðurinn hafði verið að reyna að brjótast inn í bíl og var búinn að skemma bílinn. Maðurinn er einnig grunaður um hylmingu og brot á vopnalögum. Var hann vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu.

Um fjögurleytið í nótt var tilkynnt um líkamsárás í miðbænum. Maður hafði verið rotaður og sá sem réðst á hann var handtekinn á vettvangi. Hann var vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu.

Laust fyrir klukkan eitt í nótt gerðist það í Hraunbæ að ökumaður bíls sem lögreglumenn hugðust hafa afskipti af sinnir ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og reynir að aka á brott en ekur á kantstein,  affelgar dekk og neyðist til að stöðva.  Þá reynir ökumaðurinn að hlaupa á brott en er fljótlega handtekinn.  Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna,  ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum og fara ekki að fyrirmælum lögreglu.  Þrír farþegar voru í bílnum og fóru þeir sína leið að lokinni skoðun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna blandar sér í kynjaumræðuna – Ætlar að taka þátt í „alvöru baráttu“ en ekki „píkupólitík“

Sólveig Anna blandar sér í kynjaumræðuna – Ætlar að taka þátt í „alvöru baráttu“ en ekki „píkupólitík“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Diljá Mist: „Þetta er ógnvænleg þróun og óásættanleg“

Diljá Mist: „Þetta er ógnvænleg þróun og óásættanleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Franska konan sem grunuð er um morð á hóteli í Reykjavík látin laus og úrskurðuð í farbann

Franska konan sem grunuð er um morð á hóteli í Reykjavík látin laus og úrskurðuð í farbann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslensku strákarnir úr leik en gráti næst yfir stuðningnum – Myndband

Íslensku strákarnir úr leik en gráti næst yfir stuðningnum – Myndband