fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Sport

Hlédrægi orkuboltinn sem aldrei tapar tæklingu

Ótrúlegur uppgangur N’Golo Kante – Mætti á vespu á æfingu þegar aðrir mættu á lúxusbílum

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 23. mars 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarið 2015 vissu sárafáir aðdáendur enska boltans hver N‘Golo Kante er. Þetta sumar var þessi smávaxni franski miðjumaður keyptur til Leicester frá franska liðinu Caen á átta milljónir evra. Stuðningsmenn Leicester settu margir spurningarmerki við kaupin, enda hafði Kante aðeins spilað eitt tímabil í efstu deild Frakklands á ferli sínum. Þar að auki veltu ýmsir fyrir sér hvernig 169 sentimetra hár leikmaður myndi standa sig innan um stærri og sterkari miðjumenn í ensku úrvalsdeildinni.

Einn sá besti

Eins og flestir vita er þessi 25 ára leikmaður, nú tæpum tveimur árum síðar, að margra mati einn besti miðjumaður heims og á góðri leið með að vinna sinn annan úrvalsdeildartitil á einu ári, fyrst með Leicester og svo með Chelsea, sem festi kaup á honum í fyrrasumar fyrir um 30 milljónir punda. FourFourTwo-tímaritið kynnti sér sögu þessa magnaða leikmanns og er óhætt að segja að Kante hafi þurft að hafa fyrir því að komast á þann stall sem hann er á í dag.

Ótrúlegur uppgangur

Kante er fæddur í París þann 29. mars árið 1991 og hóf hann feril sinn hjá hverfisliði sínu JS Suresnes. Þar spilaði Kante í ellefu ár, eða allt þar til hann samdi við annarrar deildar liðið Boulogne árið 2010. Þar spilaði Kante með unglingaliðinu fyrst um sinn, en árið 2012 kom hans fyrsta tækifæri með aðalliðinu. Því miður féll Boulogne niður í þriðju efstu deild þetta tímabil en fyrir Kante var það kannski það besta sem hefði getað gerst. Tímabilið 2012/13 var Kante byrjunarliðsmaður hjá Boulogne og lék hann 39 leiki það tímabil. Spilamennska hans vakti athygli Caen og var hann keyptur sumarið 2013 til liðsins sem þá lék í næstefstu deild. Strax á fyrsta tímabili Kante með liðinu komst liðið upp í efstu deild Frakklands og spilaði hann því í efstu deild tímabilið 2014/15 áður en Leicester keypti hann.

Kante lék með Caen í franska boltanum áður en Leicester keypti hann árið 2015.
Ungur að árum Kante lék með Caen í franska boltanum áður en Leicester keypti hann árið 2015.

Feiminn og hlédrægur

Kante er lýst sem feimnum og hlédrægum einstaklingi sem lætur verkin tala. Eric Vandenabeele, fyrrverandi liðsfélagi Kante hjá Boulogne, rifjar upp þegar þeir félagar horfðu saman á Evrópudeildarleik fyrir margt löngu. Eric sagði við Kante meðan á leiknum stóð að einn daginn myndi Kante spila í þessari deild. Ekki stóð á svarinu hjá Kante sem sagði að það væri ekki möguleiki – hann myndi aldrei ná svo langt.
„Kante hefur aldrei viljað verða stórstjarna og jafnvel í dag veit ég að hann lætur frægðina ekki stíga sér til höfuðs. Hann vill bara vera eins góður og hann getur orðið,“ segir Eric. Fleiri fyrrverandi liðsfélagar hans taka í sama streng. „Hann er mjög, mjög rólegur náungi og talar ekki mikið – hann er með gott hugarfar,“ segir Cedric Fabien sem, eins og Eric, spilaði með Kante hjá Boulogne.

Vinnusemin fleytir honum langt

Það er einmitt þetta hugarfar Kante sem hefur komið honum á þann stað sem hann er á í dag. Kante er ekki besti fótboltamaður í heimi en vinnusemi hans og barátta fleytir honum langt. Þegar Kante spilar er Chelsea – og áður Leicester – líklegra til að vinna sína leiki en ella.
Félagar hans segja að Kante hafi aldrei verið mikið fyrir næturlífið, heldur þess í stað einbeitt sér að markmiðum sínum utan vallar. Samhliða því að spila fótbolta náði Kante sér í gráðu í bókhaldi. „Hann var ekki mikið með vinum sínum og fór aldrei út á lífið,“ segir Eric. Undir þetta tekur fyrrverandi þjálfari hans hjá FC Suresnes, Tomasz Bzymek. „Eftir æfingar fór Kante bara heim og hvíldi sig.“

Mætti á æfingar á vespu

Æska Kante var ekki alltaf dans á rósum. Hann ólst upp á stóru heimili og á hann átta systkini. Kante missti föður sinn þegar hann var ellefu ára. Fjölskyldan þurfti því að vera nægjusöm og virðist Kante vera það enn í dag. Þegar Kante spilaði með Caen í efstu deild franska boltans mætti hann á æfingar á vespu þegar liðsfélagar hans óku glæsikerrum.

Kante hefur spilað 13 landsleiki fyrir Frakkland. Hann er á góðri leið með að verða lykilmaður í liðinu.
Með landsliðinu Kante hefur spilað 13 landsleiki fyrir Frakkland. Hann er á góðri leið með að verða lykilmaður í liðinu.

Mynd: EPA

Eins og að framan greinir er Kante ekki þekktur fyrir að sýna glæsileg tilþrif inni á vellinum. Og þó að Kante hafi bætt sig mikið sem knattspyrnumaður er það ekki hans sterkasta hlið að skora eða leggja upp mörk. Styrkleiki hans liggur annars staðar. Að sögn Piotr Wojtyna, fyrrverandi þjálfara hans, gat Kante ekki notað vinstri fótinn nema til að stíga í hann þegar hann var tíu ára. Þegar Piotr benti honum á að hann þyrfti að bæta þann hluta leiksins fór Kante á aukaæfingar þar sem hann æfði vinstri fótinn. Innan tveggja mánaða gat hann haldið boltanum á lofti 100 sinnum með vinstri. Veikleikar Kante voru fleiri; hann var ávallt lágvaxnari en andstæðingar hans og hafði ekki mikla líkamlega burði. Í dag ýtir enginn Kante svo glatt frá boltanum og hann vinnur flestar þær tæklingar sem hann fer í.

Aðeins að byrja

Kante er stundum sagður líkjast Claude Makelele, fyrrverandi leikmanni Chelsea og franska landsliðsins. Makelele tjáði sig um Kante fyrir skemmstu og sagði að Kante hefði alla burði til að verða frábær leikmaður. Hann þyrfti þó að bæta sig á ákveðnum sviðum og láta meira til sín taka innan vallar sem utan. Með öðrum orðum þyrfti hann að verða sterkari leiðtogi. Þá fyrst yrði hægt að flokka Kante með þeim allra bestu í boltanum, ekki fyrr. Þessu eru fyrrverandi félagar Kante ósammála og segja þeir að Kante sé öðruvísi leikmaður en Makelele og fleiri. Hann sé í raun ný tegund leikmanns.

Kante er þegar farinn að láta til sín taka í franska landsliðinu og segir Fabien að Kante sé tilbúinn að taka enn eitt skrefið fram á við og verða lykilmaður í landsliðinu. Hann er enn aðeins 25 ára gamall, er enn að bæta sig og á framtíðina fyrir sér. Ljóst er að miðað við uppganginn á undanförnum árum er þessi magnaði leikmaður aðeins að byrja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

,,Hann má taka því rólega í tveimur leikjum gegn okkur“

,,Hann má taka því rólega í tveimur leikjum gegn okkur“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sambandið hangir á bláþræði eftir framhjáhaldið: Stórstjarnan gæti fengið óþarfa athygli í sumar – ,,Hefur áhrif á mig á börnin“

Sambandið hangir á bláþræði eftir framhjáhaldið: Stórstjarnan gæti fengið óþarfa athygli í sumar – ,,Hefur áhrif á mig á börnin“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Messi minnir verulega á sig – Var stórkostlegur í nótt

Messi minnir verulega á sig – Var stórkostlegur í nótt
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

England: Chelsea kom til baka á Villa Park

England: Chelsea kom til baka á Villa Park
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Besta deild kvenna: Sandra skoraði fernu – Svakaleg endurkoma Stjörnunnar

Besta deild kvenna: Sandra skoraði fernu – Svakaleg endurkoma Stjörnunnar