fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
Fréttir

Davíð segir andstöðu við þriðja orkupakkans ýta undir aðild að ESB: „Andstæðingar EES að pissa í skóinn sinn“

Hjálmar Friðriksson
Miðvikudaginn 8. maí 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Þorláksson, fyrrverandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, segir í Bakþanka Fréttablaðsins að ef Ísland gengur úr EES þá finnist honum augljóst að Ísland verði að ganga í sambandið. Því séu andstæðinga EES að pissa í skóinn sinn með því að gera þriðja orkupakkann að deiluefni.

„Andstæðingar veru Íslands á EES hafa ákveðið að gera 3. orkupakkann að deilumáli í stað þess að segja berum orðum að þeir vilji ganga úr EES. Frá því að MMR hóf að mæla stuðning við inngöngu í Evrópusambandið mánaðarlega í maí 2011 hefur stuðningur við inngöngu verið á bilinu 20-37% á meðan andstaðan hefur verið 45-65%. Í síðasta mánuði var stuðningurinn 32% og andstaðan 50%. Þessi mikla andstaða, Brexit og uppgangur popúlista beggja vegna Atlantshafsins virðist hafa hleypt nýju blóði í andstæðinga EES,“ segir Davíð.

Hann segir að ef Ísland gengi úr EES þá væri Ísland berskjaldað gagnvart verndarhyggju. „EES gefur okkur aðgang að innri markaði Evrópu sem auðveldar okkur að flytja vöru og þjónustu inn og út. Það er samband á milli vaxandi alþjóðaviðskipta og minnkandi fátæktar og aukinnar velmegunar. Alþjóðaviðskipti bæta lífskjör allra, sérstaklega íbúa í litlu og landfræðilega einangruðu landi. Ef við gengjum úr EES þá værum við berskjölduð gagnvart verndarhyggju. Bæði því að erlend ríki beiti okkur viðskiptaþvingunum og að íslenskir stjórnmálamenn beiti þvingunum sem bitnar á endanum á okkur,“ segir Davíð.

Hann segist aldrei hafa verið stuðningsmaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið en það myndi líklega breytast ef Ísland gegni úr EES. „Það er t.d. EES að þakka að við erum ekki með gjaldeyrishöft, ekki með einokun á framleiðslu og sölu á rafmagni og að til stendur að afnema bann við innflutningi á fersku kjöti og fjöldatakmarkanir á leigubílum. Ég hef aldrei verið stuðningsmaður þess að Ísland gangi í ESB. Ef Ísland gengur úr EES þá finnst mér augljóst að Ísland verði að ganga í sambandið. Eflaust gildir það um fleiri. Ég held því að andstæðingar EES séu að pissa í skóinn sinn með þessari vegferð,“ segir Davíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vandræðahús í Vestmannaeyjum rifið – „Nánast óviðgerðarhæft eftir margra ára vanhirðu“

Vandræðahús í Vestmannaeyjum rifið – „Nánast óviðgerðarhæft eftir margra ára vanhirðu“
Fréttir
Í gær

Norður kóreski einræðisherrann með óvenjulega játningu – „Hjarta mitt brestur“

Norður kóreski einræðisherrann með óvenjulega játningu – „Hjarta mitt brestur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona verður veðrið á Menningarnótt

Svona verður veðrið á Menningarnótt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fimm ára drengur nærri drukknaður á Tenerife

Fimm ára drengur nærri drukknaður á Tenerife
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íris segir heilbrigðiskerfið hafa brugðist móður sinni – Fékk heilabilun en taldi skárra að fá frekar krabbamein

Íris segir heilbrigðiskerfið hafa brugðist móður sinni – Fékk heilabilun en taldi skárra að fá frekar krabbamein
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Staðfest að eldislaxar komust í Haukadalsá

Staðfest að eldislaxar komust í Haukadalsá