fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
433

Mourinho hefur glatað einhverju: ,,Þeir voru byrjaðir að hata hann“

Victor Pálsson
Mánudaginn 22. apríl 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jose Mourinho, fyrrum stjóri Chelsea og Manchester United, er ‘búinn’ samkvæmt Frank Lebouef, fyrrum leikmanni þeirra bláklæddu.

Mourinho hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit síðustu ár eftir nokkuð erfiða dvöl á Old Trafford.

Portúgalinn er einfaldlega ekki sami maður og hann var að mati Lebouef og hefur hann tapað einhverju á seinustu árum.

,,Ég tel að Mourinho sé búinn með sinn tíma. Ég var mjög hrifinn af honum þegar hann kom fyrst til Chelsea frá Porto,“ sagði Leboeuf.

,,Hann hefur hins vegar tapað einhverju í dag, ég man eftir því þegar allir leikmenn sögðu að þeir elskuðu hann.“

,,Ég man eftir Marco Materazzi grátandi hjá Inter Milan og allt það. Hann hefur glatað því, svo mikið að það voru leikmenn hjá Manchester United sem hötuðu hann.“

,,Hann þarf að hugsa um eigið líf ef hann vill komast aftur í stórlið, kannski Paris Saint-Germain en hann þarf að hugsa sinn gang.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hannes ræðir förina í brúðkaup Gylfa Þórs og allt fjaðrafokið í kjölfarið – „Þess vegna fannst mér svo brotið á minni réttlætiskennd“

Hannes ræðir förina í brúðkaup Gylfa Þórs og allt fjaðrafokið í kjölfarið – „Þess vegna fannst mér svo brotið á minni réttlætiskennd“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Þetta verður stærsta verkefni Slot hjá Liverpool

Þetta verður stærsta verkefni Slot hjá Liverpool
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

PSG franskur meistari eftir tap Monaco

PSG franskur meistari eftir tap Monaco
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Unglingurinn skoraði sjö mörk fyrir Arsenal

Unglingurinn skoraði sjö mörk fyrir Arsenal
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Heppinn að vera með meðvitund eftir ‘árásina’ í gær – Sjáðu óhugnanlegt myndband

Heppinn að vera með meðvitund eftir ‘árásina’ í gær – Sjáðu óhugnanlegt myndband
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ekki of vinsæll í Barcelona eftir valið – ‘Sá besti’ kemst ekki í liðið

Ekki of vinsæll í Barcelona eftir valið – ‘Sá besti’ kemst ekki í liðið