fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Stella 40 prósentum ódýrari þar til í júní: 18 gámar á leiðinni til að anna eftirspurn

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 4. apríl 2019 11:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

18 gámar af bjórnum Stella Artiois eru á leiðinni til landsins á næstu vikum, eða um 720 þúsund flöskur til að anna aukinni eftirspurn eftir bjórnum í kjölfar verðlækkunar. Verðlækkunin er ýmist talin hafa komið í kjölfar verðboðs Costco, eða vegna hagstæðari kjara frá framleiðanda.

Bjórinn hefur ítrekað selst upp í vínbúðunum eftir að verðið var lækkað þann 1. mars síðast liðinn. Morgunblaðið greindi frá því í gær að lækkunin hefði verið sökum verðboðs þar sem verslunarrisinn Costco vildi taka við sölu á bjórnum í Vínbúðunum.  Vínnes, sem hefur séð um flutning og sölu á Stellu undanfarin ár, brást við verðboðinu með verðlækkun þar sem 330 ml glerflaskan var lækkuð niður í 219 krónur, um 40 prósentum ódýrari en áður. Þar með var komið í veg fyrir að gengið yrði að boði Costco.

Samkvæmt Morgunblaðinu er Stella vinsælasti flöskubjórinn í vínbúðunum og seldust um milljón flöskur á síðasta ári.

Verðlækkunin olli eðlilega mikilli aukningu á sölu og seldist 200 prósent meira af Stellu í mars heldur en í mars 2018.  Reglur ÁTVR kveða á um að verðboð verði að standa í að minnsta kosti þrjá mánuði en Halldór Ægir Halldórsson, vörumerkjastjóri Vínnes, sagði í Morgunblaðinu í mars að verðlækkunin væri í tilefni af 30 ára afmæli bjórs á Íslandi sem og vegna tímabundinna góðra kjara sem fengist hefðu frá framleiðanda. Tók hann fram að tilboðið stæði aðeins út mars.  Halldór segir að verðlækkunin sé vegna góðra kjara sem Vínnes buðust, ekki vegna verðboðs Costco, og þó þeim hafi aðeins verið skylt að lækka verð á Stellu í flösku hafi verið tekin ákvörðun um að lækka verð á öllum Stella bjórum.

„Við fengum mjög gott verð frá framleiðanda. Ég sá enga ástæðu til að minnast á verðboðið í þessu samhengi, því við erum þarna með lækkun á allrai Stella-línunni, og vonum að neytendur njóti vel.“

Samkvæmt Halldóri þarf að bíða þess og sjá hvað verður eftir að verðfestunni lýkur 1. júní.

„Við verðum að sjá og meta viðbrögðin við þessum kjörum og sjá hvort hægt er að fara einhvern milliveg. Eftirspurnin hefur verið mun meiri en við bjuggumst við. Við höfum lent í vandræðum með allar Stellu-vörurnar í mars. Stóru dósirnar kláruðust fyrst, svo litlu dósirnar og loks litlu flöskurnar.“

Stellu-Artois elskandi Íslendingar þurfa því að hafa snör handtök ætli þeir að ná sér í flösku á lækkuðu verði, því það er líklega aðeins tímabundið og eftirspurnin er mikil. Vínnes er aðeins skylt að halda lækkuðu verði í þrjá mánuði. Eftir það er þeim í sjálfvald sett hvort þeir hækki. Costco má hins vegar ekki gera annað verðboð fyrr en að tólf mánuðum liðnum. Svo þarna eru níu mánuðir þar sem byrginn getur hækkað verð aftur að vild, þar til hann þarf að lækka það aftur sem svar við næsta verðboði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Í gær

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skrif Guðmundar Andra um málþóf vekja athygli: „Niðurlægjandi fyrir þjóðina“

Skrif Guðmundar Andra um málþóf vekja athygli: „Niðurlægjandi fyrir þjóðina“