Margir starfsmenn flugfélagsins WOW áttu heldur betur dapran dag í gær í kjölfar rekstrarstöðvunar félagsins. Í skýrslu Reykjavík Economics um efnahagsleg áhrif WOW er gert ráð fyrir að um 2900 manns tapi vinnu vegna gjaldþrotsins. Nú þegar hafa um 1100 starfsmenn WOW misst vinnuna, 59 hjá Kynnisferðum og nú 3 til viðbótar á flugvellinum.
Hins vegar voru mun fleiri en aðeins starfsmenn flugfélagsins og víðar sem áttu erfiðan dag og var fjöldi fólks strand eftir að flugi þeirra var aflýst án fyrirvara.
Ýmis fyrirtæki hafa sýnt þessu fólki mikla samúð og gert tilraun til þess að peppa upp móralinn.
Viskíbarinn Dillon hlaut mikinn stuðning Facebook-notenda, en þeir birtu stöðufærslu þar sem ókeypis öl væri í boði hússins. Í færslunni stendur:
„Við erum bara lítill bar en okkur langar að bjóða starfsfólki WOW á smá djamm á morgun – þannig að gegn framvísun starfsmannaskirteinis fá fyrrum starfsmenn WOW frían bjór til klukkan 20.“
„Ef þið eruð ekki með neinn samastað bókaðan, mælum við með að þú kíkir á írska barinn í Keflavík. Ert þú á meðal þeirra sem eru strand? Þá er ókeypis bjór handa þér!“
Þetta segir í stöðufærslu Keflvísku kránnar Paddy’s, en Björgvin Ívar Baldursson, einn af eigendum staðarins, segir að hafa komið góðar undirtektir við færsluna í gær. „Það voru allavega viðbrögð eins og það hefði verið eitthvað action og þeir sem mætt nokkuð sáttir bara,“ segir Björgvin.
Stjórnendur klámsíðunnar Brazzers bjóða þeim farþegum sem eru strandaglópar um þessar mundir vegna gjaldþrots Wow Air upp á fría áskrift að vefsíðunni, gegn því að þeir sendi þeim mynd af flugmiðanum sínum en þetta tilkynnir fyrirtækið á Twitter í færslu sem má sjá hér að neðan.
Stranded by @wow_air? Send us a pic of your boarding pass for a free membership to pass the time! #WOW #wowairlines pic.twitter.com/pAsKIfrLzM
— Brazzers (@Brazzers) March 28, 2019
Vinnumálastofnun vekur athygli á að þeir sem hafa starfað hjá WOW air geta sótt um atvinnuleysisbætur á heimasíðu stofnunarinnar. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, sagði í samtali við Kjarnann í morgun að stofnuninni væri ekki búið að berast nein formleg tilkynningu frá WOW air um hversu marga starfsmenn sé að ræða. Hún sagði jafnframt að Vinnumálastofnun hefði nú þegar sett af stað viðbragðsáætlun og fylgist grannt með stöðu mála. Auk þess hefði stofnunin þegar aukið mannskap í þjónustuveri og lengt opnunartíma.
Strandaglópar, bæði starfsmenn og ferðalangar, þurftu ekki margir að leita langt ef Icelandair vél á sama áfangastað stæði nálægt, en þeim hefur að sjálfsögðu verið boðið ókeypis far til Íslands til að minnka höggið.