fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
433

Útileikir í Meistaradeildinni og Suarez eiga enga samleið

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 19. febrúar 2019 22:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Luis Suarez, leikmaður Barcelona, elskar að skora mörk og hefur gert mikið af því á ferlinum.

Suarez raðaði inn mörkum fyrir Liverpool áður en hann tók skrefið til Spánar og skorar þar reglulega.

Hann er hins vegar í basli með að komast á blað í útileikjum Meistaradeildarinnar.

Suarez lék með Barcelona í 16-liða úrslitum keppninnar í kvöld en liðið gerði markalaust jafntefli við Lyon.

Suarez tókst ekki að skora í þeim leik og hefur nú leikið heila 16 útileiki í keppninni í röð án þess að komast á blað.

Það er sturluð staðreynd enda Suarez þekktastur fyrir það að vera traustur markaskorari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Skrifar undir eða verður settur á sölulista – ,,Erum ekki félag sem losar leikmenn frítt“

Skrifar undir eða verður settur á sölulista – ,,Erum ekki félag sem losar leikmenn frítt“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Eru í þriðju deild en stefna gríðarlega hátt – Verður stærri en völlur Chelsea og Villa

Eru í þriðju deild en stefna gríðarlega hátt – Verður stærri en völlur Chelsea og Villa
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Brynjar Björn kallar eftir því að KSÍ og ÍTF skoði það alvarlega að gera breytingar

Brynjar Björn kallar eftir því að KSÍ og ÍTF skoði það alvarlega að gera breytingar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Var nær dauða en lífi í spinning-tíma – Þakkar fólkinu sem brást hratt við

Var nær dauða en lífi í spinning-tíma – Þakkar fólkinu sem brást hratt við