Luis Suarez, leikmaður Barcelona, hefur gefið í skyn að hann hafi áhuga á að snúa aftur til Liverpool einn daginn.
Suarez yfirgaf Liverpool fyrir Spán árið 2014 en hann var frábær í treyju enska liðsins.
,,Allir sem spila fyrir Liverpool eru tengdir félaginu allt sitt líf,“ sagði Suarez við blaðamenn.
,,Liðið spilar frábæran fótbolta og það verður áhugavert að sjá hvernig þeim gengur á árinu. Ég held að við getum búist við miklu.“
,,Ég starfa fyrir annað félag í dag svo það er ekki efst í mínum huga en allir leikmenn myndu vilja æfa undir stjórn Jurgen Klopp.“