fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Níu ganga enn lausir

Afdrif þeirra 22 sem George Bush lagði áherslu á að ná eftir árásirnar 11. september 2001

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 3. nóvember 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það verður að finna þá, þeir verða stoppaðir og þeim verður refsað. Það er ekki til sá staður í heiminum þar sem þeir geta falið sig,“ sagði George W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum þann 11. september 2001. Bush vísaði þarna til 22 einstaklinga sem bandarísk stjórnvöld töldu að bæru ábyrgð á ódæðisverkunum og öðrum voðaverkum á árunum á undan sem beindust gegn Bandaríkjunum. Efstur á blaði var Osama bin Laden sem bandarísk yfirvöld náðu loks að fella árið 2011. En hvað varð um alla hina? ABC tók á dögunum saman upplýsingar um afdrif þeirra.

Hinir látnu:

Osama bin Laden:
Bin Laden var talinn hafa borið höfuðábyrgð á hryðjuverkaárásunum 11. september en hann var einnig talinn bera ábyrgð á sprengjuárásum á bandarísk sendiráð í Austur-Afríku, Tansaníu og Keníu, árið 1998. Yfir 200 manns féllu í þeim árásum. Bin Laden var sem kunnugt er felldur af bandarískum sérsveitarmönnum í Pakistan í maí 2011.

Muhammed Atef:
Atef, sem var einn æðsti leiðtogi al-Kaída, var einnig eftirlýstur vegna árásanna á sendiráðin. Atef var drepinn í áhlaupi Bandaríkjamanna á bækistöðvar al-Kaída í Afganistan í nóvember 2001.

Fazul Abdullah Mohammed:
Fazul var æðsti koppur í búri innan al-Kaída í Austur-Afríku. Líkt og í tilfellum Atefs og bin Ladens var Fazul eftirlýstur vegna árásanna árið 1998. Hann var skotinn til bana í Sómalíu í júní 2011.

Mustafa Mohamed Fadhil:
Mustafa var talinn hafa skipulagt árásirnar á sendiráð Bandaríkjanna árið 1998. Ekki liggur fyrir hvenær Mustafa var drepinn en það gerðist einhvern tímann eftir árásirnar 2001. Fadhil var talinn hafa útvegað sprengiefnið sem notað var í árásinni í Tansaníu. Í gögnum sem Wikileaks lak árið 2011, svonefndum Guantanamo-skjölum, kom fram að hann væri látinn. Al-Kaída staðfesti það 2013.

Fahid Mohammed Ally Msalam:
Msalam var talinn hafa útvegað ökutækin sem notuð voru til að sprengja sendiráðin árið 1998. Hann var drepinn í drónaárás Bandaríkjamanna í Pakistan árið 2009.

Sheikh Amhed Salim Swedan:
Swedan var, líkt og Msalam, drepinn í Pakistan í drónaárás árið 2011. Þeir dvöldu á sama stað þegar árásin var gerð.

Ahmed Mohammed Hamed Ali:
Ahmed var drepinn af CIA í Pakistan árið 2011 líkt og Msalam og Swedan.

Imad Mughniyah:
Imad var eftirlýstur vegna ráns á flugvél Trans World Alirlines árið 1985. Vélinni var rænt þegar hún var á leið frá Kaíró til San Diego og einn bandarískur hermaður sem var um borð, Robert Stetham, var pyntaður og myrtur. Imad var drepinn þegar bílsprengja sprakk í Damaskus í Sýrlandi árið 2008.

Hinir handteknu

Khalid Shaikh Mohammed: Mohammed var einn af aðalmönnunum á bak við árásirnar 2001. Hann var handtekinn í Pakistan árið 2003. Allar götur síðan hefur hann verið í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu.

Ahmed Ibrahim al-Mughassil: Mughassil var eftirlýstur vegna aðildar að sprengjuárás í Khobar í Sádi-Arabíu árið 1996 þar sem 19 Bandaríkjamenn féllu. Tvenn samtök lýstu ábyrgð á ódæðunum, Hezbollah-samtökin í Sádi-Arabíu og al-Kaída. Mughassil var hershöfðingi innan raða Hezbollah í landinu. Hann var að sögn handtekinn árið 2015 þó að hann sé enn á lista FBI yfir eftirlýsta hryðjuverkamenn.

Ahmed Khalfan Ghailani: Ghailani bar ábyrgð á skipulagningu árásanna í Tansaníu og Keníu árið 1998. Hann var handtekinn í Pakistan árið 2004 og framseldur til Bandaríkjanna. Hann afplánar lífstíðarfangelsisdóm í Supermax-fangelsinu í Florence í Colorado.

Anas al-Liby: Eins og svo margir var Liby eftirlýstur vegna árásanna árið 1998. Fimmtán ár liðu þar til hann var handtekinn en það gerðist á götum Tripoli í Líbíu árið 2013. Hann var framseldur til Bandaríkjanna þar sem hans biðu réttarhöld en hann lést nokkrum dögum áður en þau áttu að hefjast, að sögn vegna krabbameins í lifur.

Þeir sem eru á flótta

Ayman al-Zawahiri: Eftir dauða Osama bin Laden árið 2011 tók al-Zawahiri við völdum innan al-Kaída þar sem hann hefur meðal annars talað gegn ISIS. Hann er tæknilega séð enn eftirlýstur vegna árásanna á sendiráð Bandaríkjanna árið 1998.

Abdullah Ahmed Abdullah: Abdullah er eftirlýstur vegna árásanna árið 1998 og er í dag talinn meðal efstu manna í valdastiga al-Kaída. Hann var í stofufangelsi í Íran í um áratug, en honum var sleppt úr haldi í fyrra. Talið er að hann haldi til í Sýrlandi.

Saif al-Adel:
Saif er fyrrverandi hershöfðingi í egypska hernum en líkt og Abdullah var hann í stofufangelsi í Íran í nokkur ár. Honum var sleppt árið 2010 eða 2013. Talið er að hann sé í Sýrlandi þar sem hann vinnur með liðsmönnum al-Kaída þar í landi. Hann er talinn hafa tekið þátt í árásunum 1998.

Hasan Izz al-Din: Hassan er talinn hafa skipulagt ránið á flugvél Trans World Airlines árið 1985. Að sögn FBI er hann talinn halda til í Líbanon.

Ali Atwa: Atwa er talinn hafa skipulagt ránið á vél Trans World Airlines eins og Hassan og Imad. Hann er talinn halda til í Líbanon eins og Hassan.

Abdul Rahman Yasin: Yasin er talinn bera ábyrgð á sprengjuárásinni í World Trade Center árið 1993. Abdul, sem fæddist í Bandaríkjunum, er talinn hafa flúið til Íraks en síðan þá hefur ekkert spurst til hans.

Ibrahim Salih Mohammed al-Yacoub: Ibrahim er eftirlýstur vegna aðildar að árásunum í Khobar í Sádi-Arabíu árið 1996 þar sem 19 Bandaríkjamenn féllu. Óvíst er hvar hann heldur sig í dag en hann er þó enn talinn hafa náin tengsl við Hezbollah-samtökin í Sádi-Arabíu.

Ali Saed Bin Ali El-HoorieEl-Hoorie er eftirlýstur vegna aðildar að sprengjuárásinni í Khobar. Hann gengur enn laus, 20 árum eftir voðaverkin þar sem 20 féllu og tæplega 500 særðust. Hann var í bifreiðinni sem sprengd var í loft upp, en flúði af vettvangi skömmu áður en hún sprakk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Staðfesta komu Pogba
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu