– Tvíburarnir seldu bréf sín í leigurisanum – Keyptu íbúðir sem runnu inn í félagið
Eignarhaldsfélag fjárfestanna og tvíburabræðranna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona og Þórðar Más Jóhannessonar, fyrrverandi forstjóra Straums fjárfestingarbanka, seldi í byrjun árs eignarhluti sína í leigufélaginu Heimavöllum. Félag þremenninganna átti um 16,8 prósent í Heimavöllum sem er í dag stærsta leigufélag landsins á almennum markaði og átti í árslok 2015 eignir upp á rúma tíu milljarða króna.
Arnar Gunnlaugsson staðfestir í samtali við DV að félagið Gunnlaugsson ehf. sé ekki lengur í hluthafahópi leigufélagsins. Þórður Már og félögin B. Gunnlaugsson ehf. og A. Gunnlaugsson ehf. eiga öll þriðjungshlut í Gunnlaugsson ehf. samkvæmt skráningu síðastnefnda félagsins hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra. Það átti aftur fimm prósent í Heimavöllum í eigin nafni og önnur 5,6 prósent í gegnum helmingshlut sinn í félaginu G og K ehf. sem var hluthafi í leigufélaginu í árslok 2015. Þá hélt Heimavellir GP ehf. á 15,6 prósentum í leigufélaginu en Gunnlaugsson átti einnig 33,3 prósent í því.
„Þeir seldu alla sína hluti í félaginu. Við erum í dag með 59 hluthafa sem eiga tæpa sex milljarða í félaginu í hlutafé,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla, í samtali við DV.
B. Gunnlaugsson er í eigu Rósu Signýjar Gísladóttur, sambýliskonu Bjarka. Félagið eignaðist einnig A. Gunnlaugsson árið 2013 sem var áður í eigu Arnars. Rósa tók við stjórnarmennsku og framkvæmdastjórastöðu í B. Gunnlaugsson af Bjarka í byrjun nóvember en bróðir hans situr enn í stjórninni. Arnar vildi ekki tjá sig um söluna á bréfunum í Heimavöllum, að öðru leyti en að staðfesta að þeir bræður væru farnir úr út eigendahópnum, og Bjarki vildi ekki veita DV viðtal. Blaðið hefur ekki upplýsingar um hver eða hverjir keyptu þá út úr leigufélaginu. Ekki náðist í Þórð Má við vinnslu fréttarinnar.
DV hefur fjallað um hlutafjáraukningu Heimavalla sem hefur á skömmum tíma orðið eitt umsvifamesta leigufélag landsins en var stofnað í júní 2014. Í frétt blaðsins í ágúst síðastliðnum kom fram að hlutafé þess nam þá 5,8 milljörðum króna en fyrir rúmu ári stóð það í 63 milljónum. Fjölskyldufyrirtækið Stálskip var stærsti eigandi þess í árslok 2015 með 49,2 prósenta hlut og tryggingafélagið Sjóvá átti þá 28,6 prósent. Einkahlutafélagið Túnfljót ehf., í eigu Magnúsar Pálma Örnólfssonar, fjárfestis og fyrrverandi forstöðumanns gjaldeyrismiðlunar Glitnis, átti þá 17,1 prósent. Hluthafahópurinn hefur breyst síðan þá en til að mynda fóru nokkrir lífeyrissjóðir og tryggingafélögin VÍS og Vörður inn í hann í hlutafjáraukningu í vor. Guðbrandur Sigurðsson sagði í samtali við DV í ágúst að einungis einn hluthafi hefði þá átt meira en tíu prósent. Þar væri um Stálskip að ræða sem ætti 14,3 prósent.
Arnar og Bjarki áttu talsverðan þátt í stofnun Heimavalla. Þeir keyptu ásamt öðrum fjárfestum íbúðir, meðal annars í tveimur fjölbýlishúsum á Selfossi í mars 2014, sem í dag eru hluti af eignasafni leigufélagsins. Þær voru áður í eigu Íbúðalánasjóðs líkt og stór hluti íbúðanna sem Heimavellir leigja nú út. Fyrsti hluthafahópur leigufélagsins varð til með sameiningu smærri fasteignafélaga og aukningu hlutafjár. Í byrjun nóvember var tilkynnt um sameiningu þess og leigufélagsins Ásabyggðar á Ásbrú í Reykjanesbæ. Sameinað félag á um tvö þúsund íbúðir og stefnt er að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Heimavellir hafa auglýst íbúðir til leigu fyrir einstaklinga og fjölskyldur og boðið langtímaleigu.