fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Sextán manns hafa fyrirfarið sér á Landspítalanum á síðustu árum

Hjálmar Friðriksson
Mánudaginn 26. febrúar 2018 16:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sextán manns hafa tekið eigið líf á Landspítalanum frá því að rafræn atvikaskráning var tekin upp árið 2004. Auk þess hafa 45 alvarlegar tilraunir til sjálfsvígs sjúklings við Landspítalann verið skráð. Þar af hafa voru átta andlát sjúklinga á geðdeildum Landspítala. Fjórir þeirra voru í dagsleyfi meðan hinir fjórir tók eigið líf inni á geðdeild.

Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur um sjálfsvíg á geðdeildum og meðferðarstofnunum. Auk þessa hafa fjórir sjúklingar á geðdeild sjúkrahússins á Akureyri tekið líf sitt frá stofnun árið 1986. Einn þeirra var inniliggjandi á deildinni árið 2012 og þrír sem voru í leyfi frá sjúkrahúsinu á árunum 1986, 2003 og 2010.

Tveir sjúklingar hafa fyrirfarið sér á Vogi, annars vegar árið 2014 og hins vegar árið 2015. Enginn hefur tekið eigið líf í meðferð í Hlaðgerðarkoti. Í svari við fyrirspurn Þórhildar Sunnu er tekið fram að ekki liggi fyrir nákvæm tölfræði um sjálfsvíg á sjúkrahúsum á Íslandi.

„Þessa tölfræði er ekki hægt að fá úr dánarmeinaskrá hjá embætti landlæknis. Það orsakast af því að óljóst getur verið hvað skuli teljast sjálfsvíg á stofnun. Andlátið getur talist hafa átt sér stað á stofnun þótt verknaðurinn hafi átt sér stað annars staðar og viðkomandi verið fluttur á stofnun þar sem hann síðan andaðist. Ef sjálfsvíg verður á stofnun ber viðkomandi stofnun að skrá það hjá sér sem alvarlegt atvik og tilkynna það til embættis landlæknis. Að mati embættis landlæknis eru tilkynningar frá stofnunum um alvarleg atvik komnar í nokkuð gott lag,“ segir í svari heilbrigðisráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Staðfesta komu Pogba
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu