Í sumar var greint frá því að varnarmaðurinn Diego Godin væri búinn að skrifa undir nýjan samning við Atletico Madrid.
Atletico reyndi ítrekað að fá Godin til að skrifa undir eftir áhuga Manchester United á að fá hann í sínar raðir.
United var tilbúið að borga 20 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er 32 ára gamall í dag.
Í dag er hins vegar greint frá því að Godin hafi aldrei skrifað undir samning og er Atletico nú enn að reyna að ná samkomulagi við leikmanninn.
Fjallað er um að United hafi mikinn áhuga á að næla í Godin næsta sumar en Jose Mourinho er aðdáandi varnarmannsins.
Það verður fróðlegt að sjá hvort Atletico nái að framlengja við Úrúgvæann sem verður samningslaus á næsta ári.