Það fer að styttast í það að fyrsti þjálfarinn í ensku úrvalsdeildinni verði rekinn á tímabilinu.
Slavisa Jokanovic, þjálfari Fulham, er líklegastur til að fá sparkið eftir hörmulegt gengi í byrjun leiktíðar.
Veðbankar telja hann lang líklegastan til að fara en þar á eftir kemur svo Mark Hughes, stjóri Southampton.
Roy Hodgson hjá Crystal Palace, Jose Mourinho hjá Manchester United og Mauricio Pochettino hjá Tottenham fylla svo út listann.
Það er athyglisvert að veðbankar telji svo líklegt að Pochettino fái sparkið þó að gengi liðsins í Evrópu hafi ekki verið frábært.
Hér má sjá listann.