Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
Chelsea mun gera Eden Hazard að launahæsta leikmanni Englands og er að bjóða honum nýjan samning. (Express)
Manchester City neitar að mæta kröfum Raheem Sterling sem hefur enn ekki skrifað undir nýajn samning. (Mirror)
Real Madrid hefur áhuga á Sterling og mun reyna við leikmanninn í janúarglugganum. (Express)
Manchester City íhugar einnig að bjóða 40 milljónir punda í Nathan Ake, leikmann Bournemouth í janúar. (Sun)
Tottenham er óvænt að skoða miðjumanninn Bradley Deck sem spilar með Blackburn. (Express)
Jose Mourinho vill fá varnarmanninn Nikola Milenkovic til Manchester United í janúar. (Star)
Arsenal hefur áhuga á að fá hinn 21 árs gamla Malcom á láni frá Barcelona í janúarglugganum. (Star)