Gunnar Nielsen, markvörður FH, spilaði hlutverk í sigurmarki liðsins í dag í 2-1 sigri á Val í Pepsi-deildinni.
FH á enn möguleika á Evrópusæti fyrir lokaumferðina eftir leikinn í dag en Gunnar var inni í teig er FH skoraði sigurmark sitt eftir hornspyrnu.
,,Ég var ekki að pæla í að fara upp sjálfur en svo horfi ég á bekkinn og sé að Óli vill að ég fari upp og það skapar smá chaos og við vonum að eitthvað gerist. Ég er stór, ég get kannski ekki skallað en ég get skapað smá chaos,“ sagði Gunnar.
,,Þetta voru tveir hálfleikar, Valur var með fyrri hálfleikinn og við seinni. Það var frábært að klára þetta í lokin.“
,,Síðasti leikurinn er úti gegn Stjörnunni og ég spilaði með Stjörnunni 2015 svo þetta er allt að spilast rétt. Frábær tilfinning.“
,,Það er spurning. Við erum að tala saman og ég er að skoða mína möguleika. Ég er 31 árs og maður er að skoða hvað er hægt. Maður fær kannski ekki mörg tækifæri til að fara út aftur,“ sagði Gunnar svo um framtíðina.