fbpx
Föstudagur 26.desember 2025
Fréttir

Með 250 þúsund á mánuði eftir 22 ár í starfi: „Allt er miklu grimmara í dag“

Auður Ösp
Fimmtudaginn 13. september 2018 11:20

Svava Ragna Hallgrímsdóttir. Ljósmynd/ Facebooksíða átaksins Fólkið í Eflingu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég sé það á Feisbúkk hvað fólk lifir óöruggu lífi. Þegar einhver veikist þá er fólk að safna á Feisbúkk af því að það á ekki efni á því að veikjast eða vera frá vinnu. Það er allt of mikill stéttarmunur í dag.“ Þetta segir Svava Ragna Hallgrímsdóttir sem unnið hefur við umönnun aldraðra síðastliðinn 22 ár.

Svava Ragna er ein þeirra sem segja sögu sína í tengslum við verkefnið Fólkið í Eflingu. Hún segir vaktavinnu vera slítandi til frambúðar og oft er hún þreytt eftir vinnu.

Börn Svövu er uppkomin í dag en á meðan þau voru yngri var oft þröngt í búi hjá fjölskyldunni.

„Fyrsta árið vann ég frá átta til tvö á meðan börnin voru á leikskóla. Seinna bætti ég við mig auka vöktum. Þetta var erfitt fjárhagslega á meðan ég var að koma börnunum mínum upp, við gátum ekki veitt okkur neitt. Við áttum aldrei pening og börðumst í bökkum. En ég er bara svo guðslifandi fegin að það rættist úr börnunum mínum og það gengur vel hjá þeim í dag.

Ég passaði mig á því að eiga alltaf nóg mat og að börnin gætu farið í ferðalög með skólanum. Ef ég náði ekki endum saman fékk ég lánað og stóð alltaf í skilum. Mín börn voru ekki í íþróttum en það var alltaf einhver kostnaður í kringum skólann, eins og þessi ferðalög.“

Svava Ragna bendir jafnframt á sláandi launamun á Íslandi í dag. Meira en helmingur af ráðstöfunartekjum hennar fer í húsaleigu.

„Ég er komin í þessi þrjú hundruð þúsund eftir eftir tuttugu og tveggja ára starfsreynslu en fæ útborgað um það bil 250 þúsund fyrir 80 prósent vinnu. Ég borga 160 þúsund í leigu hjá félagsbústöðum, en hún er vísitölutengd og hefur hækkað á milli mánaða.

Mér fannst bera á því að það var litið niður á fólk sem leitaði til félagsbústaða. Áður þagði ég með þögninni en í dag skammast ég mín ekkert fyrir að hafa leitað til þeirra.

Ég er hlynnt samvinnu og að allir vinni saman. Það er hægt að framkvæma góða hluti í góðri samvinnu. Í dag ber mikið á því að fólk er á eigin vegum. Allt er miklu grimmara í dag, ef maður skuldar húsaleigu eða eitthvað þá er það strax komið í innheimtu og tilheyrandi lögfræðikostnaður fylgir því. Í gamla daga var hægt að semja og tala saman.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Martröð ferðamanns á Íslandi – Kostnaðurinn rauk upp vegna bílastæða

Martröð ferðamanns á Íslandi – Kostnaðurinn rauk upp vegna bílastæða
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingur í fangelsi í Kólumbíu grunaður um kynferðisbrot gegn unglingsstúlku

Íslendingur í fangelsi í Kólumbíu grunaður um kynferðisbrot gegn unglingsstúlku
Fréttir
Fyrir 2 dögum
Maðurinn er fundinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðný Halla ný í framkvæmdastjórn Nova

Guðný Halla ný í framkvæmdastjórn Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakfelldur fyrir líkamsárás í Edinborgarhúsinu á Ísafirði

Sakfelldur fyrir líkamsárás í Edinborgarhúsinu á Ísafirði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur: „Þetta er „jólagjöfin“ sem verðtryggð heimili fá þessi jólin“

Vilhjálmur: „Þetta er „jólagjöfin“ sem verðtryggð heimili fá þessi jólin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helgi Hrafn segir að ógeðsleg slaufunarmenning hafi ráðið ríkjum – „Ég veit mætavel hvernig það er að lenda í svona hakkavél“

Helgi Hrafn segir að ógeðsleg slaufunarmenning hafi ráðið ríkjum – „Ég veit mætavel hvernig það er að lenda í svona hakkavél“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eva Björg breytti handriti sem reyndist of líkt Birnumálinu

Eva Björg breytti handriti sem reyndist of líkt Birnumálinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakar Samtök skattgreiðenda um að hagræða sannleikanum – „Það er einstaklega ógeðfelldur tónn í þessari grein“

Sakar Samtök skattgreiðenda um að hagræða sannleikanum – „Það er einstaklega ógeðfelldur tónn í þessari grein“