fbpx
Laugardagur 19.júlí 2025
Fréttir

Gústaf Níelsson ósáttur við ókyngreind salerni: „Frú Bergþóra mun ekki nota salerni sem einhverjir kallpungar eru búnir að spræna út“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 6. júlí 2018 21:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gústaf Níelsson, sagnfræðingur sem hefur verið viðloðandi stjórnmál og er þekktur fyrir umdeildar skoðanir og að vera bróðir Brynjar Níelssonar þingmanns, er lítt sáttur við þá ákvörðun Reykjavíkurborgar að starfsmannasalerni borgarinnar verði ókyngreind. Mannréttinda- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að öll salerni fyrir starfsfólk í stjórnsýsluhúsum borgarinnar verði gerð ókyngreind frá og með næsta hausi. Þetta kemur meðal annars fram í frétt á mbl.is.

Gústafi þykir þetta vera ósvinna og talar tæpitungulaust um málið í stuttum pistli á Facebook. Segir hann meðal annars að eiginkona sín muni aldrei nota slík salerni:

„Það er ekki öll vitleysan eins. Stefna af þessu tagi er hreinræktuð vanvirðing við konur. Að minnsta kosti mun frú Bergþóra ekki nota salerni, sem einhverjir kallpungar eru búnir að spræna út. Þetta er auðvitað í stíl við allan sóðaskapinn sem tíðkast við stjórnun borgarinnar. Ég vænti þess að konur almennt muni mótmæla svona háttarlagi háum rómi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sigurgeir syndir Ermarsund fyrir Píeta samtökin

Sigurgeir syndir Ermarsund fyrir Píeta samtökin
Fréttir
Í gær

Varð vitni að stórfelldu ráni þremenninga í Krónunni: „Ég er búin að búa hérna í sjö ár. Ég borgaði þeim í símanum mínum“

Varð vitni að stórfelldu ráni þremenninga í Krónunni: „Ég er búin að búa hérna í sjö ár. Ég borgaði þeim í símanum mínum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fuglaáhugafólk hneykslað á Sveppa – „Greinilegt að fuglarnir þjást á meðan þeir kumpánar flissa og skemmta sér“

Fuglaáhugafólk hneykslað á Sveppa – „Greinilegt að fuglarnir þjást á meðan þeir kumpánar flissa og skemmta sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenskur raftónlistarmaður losnar ekki undan þýskum plötusamningi – „Passið ykkur áður en þið skrifið undir“

Íslenskur raftónlistarmaður losnar ekki undan þýskum plötusamningi – „Passið ykkur áður en þið skrifið undir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur vill fá stundaskrá fyrir þingveturinn – Treystir Þórunni best til þess

Dagur vill fá stundaskrá fyrir þingveturinn – Treystir Þórunni best til þess
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maður sagður í haldi lögreglu eftir eldsvoða í Reykjanesbæ – Stórhættulegt ástand skapaðist

Maður sagður í haldi lögreglu eftir eldsvoða í Reykjanesbæ – Stórhættulegt ástand skapaðist