fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Eiríkur Árni Sigtryggson tónskáld valinn Listamaður Reykjanesbæjar 2018-2022

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 24. júní 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Listamaður Reykjanesbæjar er útnefndur einu sinni á hverju kjörtímabili og er það bæjarráð sem velur hann formlega eftir tillögu frá menningarráði sem unnið hefur út frá tilnefningum sem borist hafa frá bæjarbúum. Sá sem hlýtur nafnbótina Listamaður Reykjanesbæjar fær ákveðna fjárupphæð og grip til minningar um atburðinn. Þá er nafn hans einnig skráð á stall listaverks sem stendur í skrúðgarði bæjarins.

Eiríkur Árni Sigtryggsson er fæddur í Keflavík 14. september árið 1943. Hann hefur starfað sem tónskáld, tónlistarkennari og myndlistarmaður um langt árabil, bæði innan lands og erlendis en lengst af hefur Eiríkur þó starfað í Reykjanesbæ. Hann er afkastamikill listamaður á sviði tónsmíða og hafa mörg tónverka hans verið flutt hérlendis sem og erlendis, allt frá einleiks- og einsöngsverkum til hljómsveitaverka og kórverka. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur flutt verk eftir Eirík, ýmsir kammerhópar, kórar, einleikarar og einsöngvarar hafa flutt verk eftir hann og mörg þeirra hafa verið sérpöntuð af listamönnunum. Eiríkur hefur átt verk á tónlistarhátíðinni Myrkir músíkdagar og nú síðastliðið haust var verk hans Lútherskantata frumflutt af Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, kirkjukórum Kjalarnesprófastsdæmis og einsöngvurum, en Kjalarnesprófastsdæmi pantaði verkið hjá honum í tilefni af 500 ára afmæli siðbótarinnar.

Eiríkur starfaði við tónlistarkennslu í Reykjanesbæ frá árinu 1987, fyrst við Tónlistarskólann í Keflavík frá 1987 og svo við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar frá stofnun hans árið 1999 þar til hann hætti störfum vegna aldurs árið 2010. Vinir og velunnarar Eiríks ætla að standa að hátíðartónleikum í Bergi í Hljómahöll, laugardaginn 29. september næstkomandi í tilefni af 75 ára afmæli Eiríks. Á efnisskrá verða eingöngu lög og tónverk eftir hann og flytjendur eru nokkrir af færustu tónlistarmönnum þjóðarinnar á sviði klassískrar tónlistar. En auk þeirra mun Kvennakór Suðurnesja flytja lög sem Eiríkur samdi sérstaklega fyrir kórinn fyrir nokkrum árum.

Eiríkur hefur einnig verið virkur í myndlistinni og haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis. Eiríkur kenndi einnig lengi á myndlistarnámskeiðum fyrir börn og unglinga. Eiríkur hefur lagt mikið af mörkum á sviði lista og menningar og hefur átt sinn þátt í að litið er til Reykjanesbæjar sem menningarbæjar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Hefur Klopp trú á að Liverpool geti unnið titilinn? – ,,Nei, það segir þér svarið“

Hefur Klopp trú á að Liverpool geti unnið titilinn? – ,,Nei, það segir þér svarið“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“

Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Barnaskólakennari drap manninn sinn og gróf líkið úti í garði

Barnaskólakennari drap manninn sinn og gróf líkið úti í garði
Fókus
Fyrir 17 klukkutímum

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Keypti sjö líftryggingar fyrir eiginkonuna og svo dó hún á dularfullan hátt

Keypti sjö líftryggingar fyrir eiginkonuna og svo dó hún á dularfullan hátt