fbpx
Föstudagur 02.maí 2025
Eyjan

Landhelgisgæslan fylgist með framkvæmdum á skipsflaki SS Minden

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 23. júní 2018 10:45

Varðskipið Þór fylgist með Seabed Worker

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Varðskipið Þór og TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, fylgdust í gær með vinnu rannsóknarskipsins Seabed Worker sem kom inn í efnahagslögsöguna í gærmorgun. Skipið mun næstu daga leita að verðmætum í flaki þýska skipsins SS Minden sem sökk 24. júní 1939 um 120 sjómílur suðaustur af Kötlutanga.

Umhverfisráðuneytið veitti Advanced Marine Services undanþágu á gildistíma starfsleyfis sem fyrirtækið hafði áður fengið frá Umhverfisstofnun og gilti til 1. maí 2018. Varðskipið Þór er farið af svæðinu en Landhelgisgæsla Íslands mun áfram fylgjast með framkvæmdunum næstu daga en þær hófust formlega á sjöunda tímanum í gær.

Frá upphafi framkvæmda hefur Seabed Worker þrjá sólarhringa til að freista þess að ná verðmætum úr flaki SS Minden.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Þriggja vasaklúta grátskýrsla Síldarvinnslunnar – Bubbi sendir tóninn – 28 byggðir hafa tapað lífsbjörginni

Orðið á götunni: Þriggja vasaklúta grátskýrsla Síldarvinnslunnar – Bubbi sendir tóninn – 28 byggðir hafa tapað lífsbjörginni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Píratinn í minnihlutanum er launahæsti bæjarfulltrúinn

Píratinn í minnihlutanum er launahæsti bæjarfulltrúinn