Matteo Darmian, leikmaður Manchester United, er við það að ganga í raðir Ítalíumeistara Juventus.
Frá þessu greinir virti ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano en Darmian er að kveðja United.
Ítalinn er alls ekki númer eitt í goggunarröðinni hjá Jose Mourinho sem vill losa pláss í hópnum.
Juventus hefur sýnt Darmian áhuga í dágóðan tíma en AC Milan hefur einnig viljað fá hann.
Nú er útlit fyrir að Juventus sé að tryggja sér Darmian sem spilaði átta deildarleiki á tímabilinu.