Fernando Torres lék sinn síðasta leik fyrir Atletico Madrid í dag en hann mun kveðja liðið í sumar.
Torres er í guðatölu hjá stuðningsmönnum Atletico en hann er uppalinn hjá félaginu.
Torres gekk aftur í raðir Atletico frá AC Milan árið 2015 en fyrir það var hann hjá Liverpool og Chelsea.
Torres fær ekki nýjan samning hjá uppeldisfélaginu en hann er orðinn 34 ára gamall.
Framherjinn setti tvö mörk í lokaleiknum sínum í dag er Atletico gerði 2-2 jafntefli við Eibar.
Óvíst er hvar Torres mun spila næsta vetur en hann er orðaður við lið í Kína og á Englandi.