fbpx
Þriðjudagur 26.ágúst 2025
Eyjan

Algjört núll

Egill Helgason
Mánudaginn 7. mars 2011 22:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur staðið til að breyta stjórnarskrá Íslands frá stofnun lýðveldisins. Einn helsti sérfræðingur okkar um þessa sögu, Guðni Th. Jóhannesson, hefur sagt að stjórnarskráin þá hafi bara verið sett til bráðabirgða.

Því er haldið fram að breytingar hafi orðið á stjórnarskránni síðan þá, en þær felast aðallega í tvennu: Í hana var bætt mannréttindakafla í samræmi við alþjóðlegar kröfur og skuldbindingar og svo hefur við og við verið krukkað í kosningakerfinu.

Fjöldi nefnda með helstu stjórnmálamönnum þjóðarinnar og lærðum lögfræðingum hefur setið og reynt að laga stjórnarskrána.

Útkoman hefur verið eitt stórt og skammarlegt núll.

Björn Þór Sigbjörnsson blaðamaður fór yfir þessi mál í skörpum leiðara sem birtist í Fréttablaðinu í síðustu viku.

Ég birti grein Björns í heild sinni:

— — —

„Þegar rætt er um og ákveðið hvernig standa beri að endurskoðun stjórnarskrárinnar er ágætt að rifja upp hvernig síðasta tilraun gekk. Í byrjun árs 2005 tók til starfa nefnd níu stjórnmálamanna. Til verksins völdust þáverandi og fyrrverandi formenn og varaformenn flokka, fólk með jafnvel langa þingreynslu og sumt lært í lögum. Afrakstur tveggja ára starfs var tillaga um að breyta einni af 81 grein stjórnarskrárinnar. Þeirri sem kveður á um hvernig breyta beri stjórnarskránni. Þessir sérlegu trúnaðarmenn stjórnmálaflokkanna um endurskoðun stjórnarskrárinnar gátu ekki komið sér saman um annað.

Niðurstaðan er nokkuð hláleg þegar litið er til þess að árið 1989 gerði varaþingmaður einn tillögu að svo til sömu breytingu. Hún fékkst ekki rædd en var alla vega lögð fram. Öfugt við tillöguna frá trúnaðarmönnunum sérlegu sem varð að engu.

Fundargerðir nefndarinnar eru annars sérkennileg lesning. Þær bera ekki með sér að verkefnið hafi verið að ná samkomulagi um breytingar á stjórnarskránni. Sumt minnir raunar á stemninguna í huggulegu teboði þar sem rabbað er um heima og geima.

Dæmi:

1. fundur:“Mismunandi viðhorf komu fram um hversu rækilegar fundargerðirnar ættu að vera.“

4. fundur: “ . . . nefndarmenn minntir á að láta ritara vita í hvaða málstofum þeir vildu sitja í pallborði“.

5. fundur: “ . . . nefndarmenn minntir á að láta ritara vita í hvaða málstofum þeir vildu sitja í pallborði“. (Já aftur.)

6. fundur: „Þá var nefnt það sjónarmið að mikilvægt væri að gera breytingar á kjördæmaskipan í þessari lotu . . . Á hinn bóginn var því haldið fram að mikilvægt væri að færast ekki of mikið í fang.“

7. fundur: „Fram kom það viðhorf að bíða mætti með það þangað til á seinustu stigum að ákveða endanlega röð ákvæða. Aðrir töldu hins vegar að þetta væri þýðingarmikið atriði sem vert væri að skoða sem fyrst.“

9. fundur: „Nokkrar umræður urðu um hvernig gera ætti fundargerðirnar úr garði.“

12. fundur: „Formaður kvað þessa umræðu hafa verið gagnlega. Hann ályktaði af umræðunni að það væri þörf á ítarlegri ákvæðum um hlutverk forseta.“

16. fundur: „Formaður gerði að umtalsefni þá staðreynd að tíminn væri orðinn naumur til að ljúka við heildarendurskoðun á þessu kjörtímabili.“

18. fundur: „Formaður lagði að lokum til að næsti fundur yrði helgaður umræðu um framhald nefndarstarfsins.“

19. fundur: „Formaður gerði að umtalsefni þá staðreynd að ekki væri langur tími til stefnu áður en nefndin ætti að skila af sér.“

20. fundur: „Rætt var um að gera þyrfti forsætisráðherra grein fyrir stöðu mála í starfi nefndarinnar.“

Alls urðu fundirnir 26 og niðurstaðan, eins og áður sagði, núll.

Nú fjallar Alþingi um tillögu að skipun stjórnlagaráðs. Aðdragandi þess er þekktur og margt um hann að segja. Engu að síður hlýtur sagan að segja okkur að það sé alla vega tilraunarinnar virði að fara nýjar leiðir við endurskoðun stjórnarskrárinnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Ætlum að opna fleiri verslanir

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Ætlum að opna fleiri verslanir
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Svarthöfði skrifar: Eftirlit í þágu milliliða – hver fylgist með eftirlitsmönnunum?

Svarthöfði skrifar: Eftirlit í þágu milliliða – hver fylgist með eftirlitsmönnunum?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sítengd og stimpluð

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sítengd og stimpluð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Stjórnarskráin og ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Stjórnarskráin og ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni