Það var frægt þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði á Alþingi eftir frægan úrskurð Hæstaréttar: „Guði sé lof fyrir Hæstarétt.“
Sigmundur segir nú að rétt sé að bíða með Stjórnlagaþingið.
Framsóknarflokknum lá samt mikið á Stjórnlagaþinginu á landsþingi sem haldið var í janúar 2009, það var þá að Sigmundur var kjörinn formaður.
Í ályktun landsþingsins segir um Stjórnlagaþing og breytingar á stjórnarskránni:
„Markmið
Að stjórnskipun Íslands verði endurskoðuð á sérstöku stjórnlagaþingi þar sem stjórnarskrá Íslands og eftir ástæðum viðeigandi lög um stjórnsýslu, dómstóla, löggjafarstarf og kosningar verðiendurskoðuð til samræmis við framsæknar hugmyndir um stjórnskipun landsins um gagnsæi, lýðræðislega þátttöku og jafnvægi milli valdþátta.
Leiðir
Helstu álitamál sem taka þarf afstöðu til á stjórnlagaþingi eru meðal annars:
• Hvort afnema eigi þingræði og taka upp beina kosningu æðsta handhafa framkvæmdarvalds
• Hvernig eftirliti með valdháttum eigi að vera háttað, eftirlitshlutverk Alþingis, virkari ráðherraábyrgð og óháðara val dómara
• Hvort auka eigi valfrelsi kjósenda um fulltrúa á framboðslistum • Hvort takmarka eigi hámarkssetutíma þingmanna og ráðherra • Hvort auka eigi möguleika á þjóðaratkvæði og jafnvel frumkvæði að löggjöf frá almenningi • Hvernig gagnsæi stjórnkerfisins sé tryggt • Hvort þörf sé á sérstökum þjóðhöfðingja og þá hvert hlutverk hans eigi að vera • Hver staða sveitarfélaganna eigi að vera, svo sem með hlutdeild í fjárstjórnarvaldi ríkisins • Hvort og þá hvernig skipta eigi landinu í kjördæmi • Hvernig staðið skuli að framsali valdheimilda til alþjóðlegra stofnana • Hvernig tryggja eigi skýrt og ótvírætt sjálfstæði hinna þriggja meginþátta ríkisvaldsins
löggjafarvalds, dómsvalds og framkvæmdarvalds
Fyrstu skref
Þingflokkur Framsóknarflokksins skal leggja fram tillögu á Alþingi um kosningu til stjórnlagaþings í samræmi við niðurstöður íbúalýðræðisnefndar flokksins. Einnig verði lögð fram tillaga um breytingu á stjórnarskránni þess eðlis að breytingar á stjórnarskrá verði bornar undir þjóðaratkvæði. Stefnt skal að því að stjórnlagaþing verði kallað saman sem fyrst og tillögur þess að nýrri stjórnarskrá verði lagðar fyrir þjóðina. Stjórnlagaþing skal ekki vera skipað núverandi eða fyrrverandi alþingismönnum, ráðherrum eða formönnum stjórnmálahreyfinga.“