Vinirnir Davíð Oddsson og Hannes Hómsteinn Gissurarson tala einum rómi í dag. Í skrifum beggja endurspeglast það viðhorf að Sjálfstæðisflokkurinn megi ekki vera sammála ríkisstjórninni um nokkurn hlut eða leggja henni lið:
Davíð kallar Bjarna Benediktsson vikapilt hjá Steingrími J. og skrifar:
„Á almanna vitorði er að þingflokkur sjálfstæðismanna er enn án sjálfstrausts og ekki til stórræðanna. Það er þó óþarfi. Þeir eru í stjórnarandstöðu gagnvart einni verstu stjórn sem í landinu hefur setið. Stjórn sem klúðrar öllu. Eftir hvert klúður gerir forsætisráðherrann hróp að Sjálfstæðisflokknum, hrakyrðir hann og uppnefnir. Þegar ofsinn rjátlast af þá kallar sami ráðherra á forystumenn Sjálfstæðisflokksins í sín hús til að láta þá gera fyrir sig viðvik. Og alltaf mæta þeir trítlandi. Hvers vegna? Hvað er eiginlega að?“
Hannes:
„Núverandi ríkisstjórn getur því ekki vænst þess, að Sjálfstæðisflokkurinn auðveldi henni leikinn. Brýnasta skylda flokksins er að reyna að koma þessari ríkisstjórn frá og endurreisa atvinnulífið. Brýnasta skylda flokksins er að berjast gegn stjórninni með öllum leyfilegum ráðum, en ekki að vinna verkin fyrir hana. Sjálfstæðisflokkurinn verður að vera stærri en svo, að hann komist fyrir í vasanum á Steingrími J. Sigfússyni.“