fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
Eyjan

Atkvæðin dreifast víða

Egill Helgason
Fimmtudaginn 25. apríl 2013 11:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stóru tíðindin í könnun Félagsvísindastofnunar sem birtist í Morgunblaðinu í morgun eru að fylgi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er samanlagt komið niður fyrir fimmtíu prósent.

Þetta gerist reyndar án þess að stjórnarflokkarnir séu að bæta sérlega miklu við sig.

En vegna þess að fylgið er að dreifast mikið á framboð sem ná ekki manni inn – ég ætla ekki að kalla það „dauð atkvæði“ – geta Sjálfstæðisflokkur og Framsókn fengið þingmeirihluta með fylgi sem er langt undir fimmtíu prósentum.

Líklegt er að kosningabarátta stjórnarflokkanna beinist mikið að þessu nú síðustu tvo dagana fyrir kosningar.

Það virðist vera að Píratar og Björt framtíð séu að stabílíserast á bilinu 6-8 prósent.

Framsókn er greinilega að tapa fylgi á síðustu metrunum, en í raun má segja að allt yfir tuttugu prósent sé stórsigur fyrir flokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn eygir vona að verða stærsti flokkurinn,  en það yrði samt með einhverju lægsta fylgi í sögu hans.

Sýnir hvað atkvæðin eru að dreifast óhemju víða í þessum kosningum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?