Jose Mourinho, stjóri Manchester United er einn sigursælasti knattspyrnustjóri samtímans.
Hann stýrir Manchester United í dag eins og áður sagði en hann tók við liðinu af Louis van Gaal sumarið 2016.
Mourinho hefur alltaf náð árangri, hvar sem hann kemur og hefur unnið deildartitla í fjórum löndum.
Hann er þekktur fyrir það að fara sínar eigin leiðir og hefur verið duglegur að losa sig við þá leikmenn sem hafa ekki verið að kaupa hugmyndafræði hans.
Squawka tók saman skemmtilegan lista yfir átta leikmenn sem Portúgalinn hefur losað sig við en þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa slegið í gegn eftir að Mourinho seldi þá.
Listann má sjá hér fyrir neðan.
Kevin de Bruyne (Chelsea)
Mohamed Salah (Chelsea)
David Luiz (Chelsea)
Romelu Lukaku (Chelsea)
Arjen Robben (Chelsea)
Leonardo Bonucci (Inter Milan)
Tiago (Chelsea)
Filipe Luis (Chelsea)