fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Sport

Landsleikir geta verið hættulegir: Hjartalæknir gefur góð ráð fyrir kvöldið

Þjóðverjar leituðu í auknum mæli á bráðamóttöku á HM 2006 – Mikilvægt að draga andann djúpt

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 27. júní 2016 14:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er þekkt að hjartaáföllum getur fjölgað í kringum atburði þar sem mikil geðshræring grípur um sig, til dæmis við náttúruhamfarir og jafnvel alvarlegar umferðarteppur. Fótbolti getur auðvitað leitt til þess að spennustig einstaklinga hækkar verulega og það hefur verið sýnt fram á aukningu á bráðum hjartatilfellum í kringum mikilvæga leiki.“

Þetta segir Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalæknina á Landspítalanum, í pistli sem birtist á heimasíðu Landspítalans. Þar gefur fótboltaáhugamönnum góð ráð áður en leikurinn hefst.

„Það hefur ekki farið framhjá neinum að knattspyrnulandsliðið okkar hefur staðið sig frábærlega vel á EM sem nú fer fram í Frakklandi. Ekki nóg með það heldur hafa leikirnir verið þvílíkt jafnir og spennandi að sumum þykir nóg um. Ýmsir hafa jafnvel velt fyrir sér hvort svona spenna sí ofan í æ geti verið óholl fyrir hjartað, ekki síst fyrir þá sem kunna að vera veikir fyrir,“ segir Davíð í pistlinum.

Hann vísar í rannsókn sem gerð var í Þýskalandi þegar heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu var haldin þar fyrir áratug og kom í ljós að á leikdögum Þjóðverja fjölgaði komum til muna á bráðamóttökur vegna brjóstverkja og hjartsláttartruflana. „Hér heima var gerð rannsókn í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Hún sýndi fram á aukningu á komum á bráðamóttökur hjá einstaklingum með einkenni frá hjarta í nokkra daga eftir frægt ávarp þáverandi forsætisráðherra. Íslendingar virðast því síður en svo vera ónæmir fyrir áhrifum stórra viðburða á heilsuna,“ segir hann.
Hann bætir við að starfsfólk Hjartagáttar Landspítalans hafi ekki orðið vart við fjölgun á heimsóknum á Hjartagáttina í tengslum við leik Íslands og Austurríkis síðastliðinn miðvikudag þrátt fyrir mjög svo æsilegan endi á þeim leik.

„Samkvæmt ofansögðu er þó vissulega ákveðin hætta fyrir hendi. Það stefnir í spennandi leik gegn Englendingum á mánudaginn kemur (í kvöld) og sumir spá að hann geti jafnvel endað í vítaspyrnukeppni. Ef svo fer mun heldur betur reyna á taugar landsmanna enda kannski fátt meira taugatrekkjandi en vítaspyrnukeppni þar sem mikið er í húfi,“ segir Davíð sem spyr svo hvort hægt sé að undirbúa sig fyrir átök af þessu tagi.

„Það er auðvitað ekki hægt að ráðleggja fólki sem er veikt fyrir að horfa ekki á leikinn. Það myndu sennilega ekki margir hlusta á slíkar ráðleggingar hvort eð er. Þetta hefur jú verið þvílík skemmtun hingað til og svona árangur eflir auðvitað þjóðarstoltið svo um munar. Það eru þó nokkur almenn ráð sem rétt er að hafa í huga og gætu dregið úr hættu á bráðum uppákomum varðandi hjartað. Þetta á ekki síst við um þá sem eru með þekktan hjartasjúkdóm,“ segir Davíð sem hefur þessar ráðleggingar fyrir fólk:

• Forðast að borða þunga máltíð rétt fyrir eða samhliða leiknum, ekki síst fituríkan skyndimat.
• Ekki vera illa sofin.
• Forðast mikla áfengisneyslu fyrir eða samhliða leiknum.
• Forðast miklar reykingar þar sem tóbak eykur á samdrátt í kransæðum og getur þannig aukið líkur á hjartaáfalli undir þessum kringumstæðum.
• Þeir sem eru á hjartalyfjum ættu að muna sérstaklega vel eftir á taka þau á leikdag. Þetta á ekki síst við ef þeir taka svokallaða beta blokka og hjartamagnýl.
• Ef heitt er í veðri og horft er á leikinn úti, t.d. á Ingólfstorgi getur vatnsdrykkja samhliða verið gagnleg.
• Ef spennustigið hjá einstaklingum verður of hátt, þá er gott að draga andann djúpt nokkrum sinnum og jafnvel taka sér stutt hlé frá leiknum.

„Ef einkenni frá hjarta gera vart við sig, einkum brjóstverkur sem varir í meira en nokkra mínútur eða skyndilegur hraður jafnvel óreglulegur hjartsláttur er ágætt að muna eftir númeri Neyðarlínunnar – 112,“ segir Davíð að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Halldór um erfiðar aðstæður í kvöld: ,,Veist ekki alveg hvar hann endar“

Halldór um erfiðar aðstæður í kvöld: ,,Veist ekki alveg hvar hann endar“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gregg eftir tapið gegn Blikum: ,,Ég held að ég hafi ekki fengið gult spjald, er það?“

Gregg eftir tapið gegn Blikum: ,,Ég held að ég hafi ekki fengið gult spjald, er það?“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Besta deildin: Víkingar svöruðu vel fyrir sig gegn KA – Danijel með tvennu

Besta deildin: Víkingar svöruðu vel fyrir sig gegn KA – Danijel með tvennu
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Orri Steinn stórkostlegur og tryggði FCK sigurinn: Kom inná og skoraði þrennu – Sjáðu öll mörkin

Orri Steinn stórkostlegur og tryggði FCK sigurinn: Kom inná og skoraði þrennu – Sjáðu öll mörkin
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Byrjunarlið Tottenham og Arsenal – Mikið undir í stórleiknum

Byrjunarlið Tottenham og Arsenal – Mikið undir í stórleiknum
433Sport
Í gær

Telur að rifrildið umtalaða í gær tali sínu máli – ,,Sannfærður um að hann sé á förum“

Telur að rifrildið umtalaða í gær tali sínu máli – ,,Sannfærður um að hann sé á förum“