– Vill Birki Bjarnason á sýningarpalla breska verslunarrisans
Breska netverslunin ASOS vill fá landsliðsmanninn Birki Bjarnason til liðs við sig ef marka má tíst sem fyrirtækið birti í kvöld. Í því er markaskorarinn íslenski hvattur til að hafa samband við ASOS þar sem not sé fyrir hann á sýningarpöllum fyrirtækisins. Það er þegar hann er búinn á EM 2016, sem verður ekki fyrr en í fyrsta lagi næsta sunnudag, því eins og alþjóð veit voru Íslendingar nú í þessu að sigra Englendinga 2-1 í 16-liða úrslitum Evrópukeppninnar í fótbolta í Nice í Frakklandi.
ASOS birtir nokkrar vel valdar myndir af Birki með tístinu og ljóst er að breska verslunin er ánægð með ljósu lokkana.
Hey @bbjarnason8, when you're done with #Euros2016 give us a call… we could use you on the ASOS catwalk ? #ENGICE pic.twitter.com/Rbgn2gZn1b
— ASOS (@ASOS) June 27, 2016