Bergur Blær Kristjánsson á líklega verðmætasta skópar landsins – fékk áritun Kanye West á ónotað Yeezy-skópar
Sautján ára menntaskólanemi datt í lukkupottinn þegar stórstjarnan Kanye West áritaði skóparið hans um síðustu helgi. Áritunin þýðir að skóparið gæti selst á rúmlega 5.000 dollara, sem gera um 600 þúsund íslenskar krónur. Eðli málsins samkvæmt er skóparið geymt í læstum peningaskáp hjá ættingja á meðan hinn útsjónarsami eigandi íhugar næstu skref.
„Ég reikna með að selja þá fljótlega,“ segir Bergur Blær Kristjánsson, sem um síðastliðna helgi eignaðist að öllum líkindum verðmætasta skópar landsins. Forsaga málsins er sú að tæplega tveimur mánuðum áður hafði Bergur Blær, ásamt nokkrum félögum sínum, beðið í biðröð í tvo sólarhringa fyrir framan verslunina Húrra til þess að kaupa par af svokölluðum Yeezy-skóm. Þeir eru hannaðir af stórstjörnunni og Íslandsvininum Kanye West.
Verðið á skónum, sem eru af gerðinni Yeezy Boost 350 Pirate Black, var um 35 þúsund krónur hérlendis. Þar sem skórnir voru aðeins seldir í takmörkuðu upplagi í sérvöldum verslunum um allan heim máttu þeir, sem lögðu það á sig að bíða, búast við því að geta selt skóna fyrir umtalsvert hærri fjárhæð. Markaðsvirðið, án áritunar, er yfir 100 þúsund krónur sé miðað við sölusíður á borð við eBay, og því ætluðu fæstir sem náðu sér í eintak að ganga í tískuskónum.
Þegar Bergur Blær frétti af veru Kanye West á Íslandi þá fékk hann snjalla hugmynd. „Mamma átti erindi niður í bæ og bauð mér að koma með. Ég þáði það og greip skóparið mitt með. Við fengum okkur síðan að borða á veitingastað fyrir framan 101 hótel, þar sem Kanye og frú dvöldu,“ segir Bergur Blær hress í samtali við DV. Hann var við öllu búinn, með penna í vasanum, og fylgdist með hótelinu.
„Allt í einu sé ég að eitthvað er að gerast fyrir utan hótelið og þýt út,“ segir hann og lýsir atburðarásinni fyrir blaðamanni. Kanye West strunsaði framhjá eldheitum aðdáendum sínum en rak síðan augun í skóna hjá Bergi Blæ. Hann greip í pennann hans og áritaði skóna í hvelli. „Svo segir hann: „There you have it“,“ segir Bergur Blær, sem eðlilega var afar ánægður með atburðarásina. „Ég náði þessu á myndband til sönnunar, það var mikilvægt atriði,“ segir hann. Áritun Kanye West þýðir að verðmæti skóparsins hefur rokið upp og ekki ólíklegt að Bergur Blær geti selt það á ríflega 5.000 dollara, það er um 600 þúsund krónur. Eitt slíkt par til sölu á Ebay og eru allnokkrir áhugasamir kaupendur sem fylgjast grannt með söluferlinu.
Félagar Bergs Blæs eru að hans sögn grænir af öfund. Þeir eiga sambærilega skó en eitt pennastrik þýðir líklega að um hálfri milljón króna munar á verðmæti þeirra. DV freistaði þess að fá mynd af hinu forláta pari og hinum útsjónarsama eiganda en það reyndist þrautin þyngri. „Ég fór með þá beint í peningaskáp hjá ættingja mínum sem er núna staddur erlendis. Þar eru þeir í öruggri geymslu,“ segir Bergur Blær og hlær.
Fyrsta skrefið í söluferlinu var að senda tölvupóst á eftirlætis skóbúðina hans en sú heitir Urban Necessities og er í Las Vegas. „Búðin kaupir áritaða skó og hefur þá til sýnis. Ég sendi þeim strax tölvupóst og ætla að kanna hvort að þeir hafi áhuga á að kaupa parið af mér. Þá gæti ég mögulega farið einhvern daginn til Las Vegas og skoðað skóna í framtíðinni,“ segir Bergur Blær.