fbpx
Þriðjudagur 10.júní 2025
Fréttir

H&M á leið til Íslands

Tvær búðir fyrirhugaðar; í miðbænum og Smáralind – Vörumerkin H&M, Cos og & Other Stories verða í boði

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 12. apríl 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt traustum heimildum DV hófust formlegar viðræður milli Regins fasteignafélags og sænska risans H&M Hennes & Mauritz AB í síðustu viku. Óformlegar viðræður hafa átt sér stað í tæpt ár en báðir aðilar hafa þvertekið fyrir að staðfesta slíkar fréttir. Samkvæmt heimildum DV er málið nú komið á það stig að hægt sé að slá því föstu að verslunarrisinn muni opna verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Leigusamningar séu klárir en aðeins eigi eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum. Heimildir DV herma að tvær verslanir H&M verði opnaðar hérlendis, önnur á jarðhæð svokallaðs Hafnartorgs, sem mun rísa árið 2018 og hin í Smáralindinni. DV hefur ekki upplýsingar um hvenær ráðgert er að opna verslunina í Kópavogi. Ásamt vörumerkinu H&M munu verslunarrýmin tvö hýsa vörumerkin Cos og & Other Stories sem einnig eru í eigu móðurfyrirtækisins H&M Hennes & Mauritz AB. Í samtali við DV neitaði Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins fasteignafélags, að tjá sig um málið.

Þrálátur orðrómur

Um margra ára skeið hefur verið hávær orðrómur um yfirvofandi komu sænska fataveldisins H&M inn á íslenskan markað. Fjölmiðlar hafa reglulega birt fréttir um meintan áhuga fyrirtækisins á opnun verslananna hérlendis. Áhugi Íslendinga á fatakeðjunni hefur einnig verið notaður sem tilefni til hrekks og listgjörnings í gegnum tíðina. Árið 2011 fullyrti miðborgarstjórinn Jakob Frímann Magnússon, í viðtali við Fréttablaðið að fulltrúar H&M hefðu verið í sambandi við hann varðandi upplýsingar um verslunarhúsnæði í miðborginni og að til greina kæmi að opna tvær verslanir hérlendis, í Kringlunni eða Smáralindinni og í húsnæði við Laugaveg 89 þar sem verslunin Sautján var áður. Þá stóðu nemar í Listaháskólanum fyrir gjörningi sem vakti nokkra athygli í byrjun árs 2012. Nemarnir komu fyrir auglýsingarborða í glugga áðurnefnds húss við Laugaveg, þar sem fyrirhuguð opnun H&M og Urban Outfitters var auglýst.

Áhugi Smáralindar mikill

Í lok október 2014 var hávær orðrómur um að H&M myndi opna verslun í Smáralind eftir áramót en framkvæmdastjóri Smáralindar bar þann orðróm til baka í frétt DV um málið. Hann viðurkenndi þó að eigendur Smáralindar væru mjög áhugsamir um að fá sænska risann inn í verslunarmiðstöðina og hefðu verið í viðræðum við fyrirtækið vegna þess. Ekkert hefði þó enn komið út úr þeim viðræðum. Í ágúst í fyrra fór Facebook-leikur í loftið þar sem auglýst var að H&M myndi opna verslun hér á landi þann 1. desember sama ár og að möguleiki væri að vinna sér inn 35.000 króna gjafabréf með því að líka við tiltekna síðu. Um þúsund Íslendingar létu glepjast þar til að í ljós kom að um hrekk var að ræða.

Í síðustu viku hafði Morgunblaðið eftir Bolla Kristinssyni, jafnan kenndum við Sautján, að verslunarkeðjan hefði engan áhuga á verslunarrekstri hérlendis enda sýndu tölur um eyðslu Íslendinga í H&M-búðum erlendis að markaðshlutdeild fyrirtækisins á íslenskum markaði væri talsverð. „Til hvers að vera eyða pen­ing­um í að koma til Íslands þegar þeir fá þetta bara í hinum búðunum,“ sagði Bolli en var ekki fyrr búinn að sleppa orðinu er formlegar viðræður Regins og H&M-veldisins hófust.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útgerðin hafi fengið 135 milljarða afslátt af veiðigjöldum – „Þetta er tekjutap ríkisins“

Útgerðin hafi fengið 135 milljarða afslátt af veiðigjöldum – „Þetta er tekjutap ríkisins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

12 ára stúlka spurði móður sína hvort gulur væri góð einkunn – „Ég eiginlega gat ekki svarað“

12 ára stúlka spurði móður sína hvort gulur væri góð einkunn – „Ég eiginlega gat ekki svarað“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þekktir hlaupa í Hengil Ultra stærsta utanvegahlaupi landsins

Þekktir hlaupa í Hengil Ultra stærsta utanvegahlaupi landsins
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Greiðslufyrirkomulag við sölu Perlunnar enn gagnrýnt – Segja um verulegan afslátt að ræða

Greiðslufyrirkomulag við sölu Perlunnar enn gagnrýnt – Segja um verulegan afslátt að ræða
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“