
Eins og DV hefur fjallað um undanfarið eru sveitarfélög í óða önn að ganga frá ráðningarsamningum við þá sem ráðnir hafa verið til að gegna stöðu sveitar- , bæjar- eða borgarstjóra á því kjörtímabili sem er nýhafið. Meðal þeirra er Mosfellsbær en nýr bæjarstjóri þar er eins og í Kópavogi og Reykjavík einnig oddviti Sjálfstæðisflokksins. Laun hans eru hins vegar nokkuð lægri en væntanleg laun borgarstjóra Reykjavíkur eða sem nemur um hálfri milljón króna.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti fyrr í mánuðinum að ráða Hilmar Gunnarsson, sem einnig er oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn, sem bæjarstjóra. Að nýjum meirihluta í bæjarstjórn standa Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn.
Í ráðningarsamningi bæjarins við Hilmar segir að grunnlaun hans skuli vera 1.968.059 krónur á mánuði. Að auki skuli greiða honum 18,31 prósent af grunnlaunum, 360.352 krónur, vegna yfirvinnu, álags og hvers annars vinnuframlags sem falli til utan dagvinnutíma. Fjárhæð launa skuli taka breytingum samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands þann 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Miða skuli við grunnvísitölu aprílmánaðar 2026. Innifalið í launum Hilmars séu laun hans sem bæjarfulltrúi og breytist heildarlaun ekki þótt breytingar verði gerðar á nefndarlaunum til hækkunar eða lækkunar.
Það er því farin sama leið í Mosfellsbæ og Reykjavík að greiða ekki bæjarstjóranum aukalega fyrir að vera einnig kjörinn fulltrúi en það er hins vegar gert í Kópavogi.
Þetta fær Ásdís í laun – Minnihlutinn kallar eftir meira gagnsæi
Hilmar nýtur hins vegar svipaðra kjara og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, þegar kemur að akstursgreiðslum. Hann fær greitt fyrir akstur á eigin bifreið vegna starfsins sem nemur 1.250 kílómetrum á mánuði. Akstursgjald er miðað við taxta ríkisins og nemur, samkvæmt ráðningarsamningi Hilmars, nú 144 krónum á kílómetra og fær því Hilmar greiddar 180.000 krónur á mánuði fyrir aksturinn. Það er þó ekki tekið fram í ráðningarsamningi Hilmars að akstursgreiðslurnar taki breytingum í samræmi við breytingar á þessum taxta ríkisins fyrir greiðslur til ríkisstarfsmanna vegna aksturs í þágu starfs þeirra.
Þegar grunnlaun, yfirvinnulaun og akstursgreiðslur til Hilmars eru lögð saman nema því heildarlaun hans 2.508.411 krónum á mánuði. Þau eru um hálfri milljón króna lægri en heildarlaun Hildar Björnsdóttur borgarstjóra Reykjavíkur eiga að vera en hennar ráðningarsamningur hefur ekki verið staðferstur í borgarstjórn. Örðugra er að bera laun Hilmars saman við laun Ásdísar Kristjánsdóttur þar sem það er ekki fyllilega skýrt í hennar ráðningarsamningi hver heildarlaunin eru.
Mosfellsbær leggur einnig Hilmari til fartölvu og farsíma og greiðir kostnað vegna farsímanotkunar hans.
Einnig greiðir bærinn iðgjöld af slysa- og líftryggingu bæjarstjórans, samkvæmt samningi við tryggingafélag bæjarins.
Það er misjafnt hvort sveitarfélög greiða fyrir líftryggingu bæjarstjóra. Mosfellsbær, Kópavogur, og Akureyri gera það en ekki stendur til að Reykjavíkurborg bjóði Hildi upp á það.
Ráðningarsamningur Hilmars gildir til loka kjörtímabilsins en gagnkvæmur uppsagnarfrestur er sex mánuðir. Fari svo að Hilmar láti af störfum áður en samningurinn rennur út þarf hann að sinna starfinu áfram á meðan uppsagnarfresti stendur, óski Mosfellsbær eftir því.
Verði Hilmar bæjarstjóri út ráðningartímann þá fær hann greidd laun í 6 mánuði eftir að ráðningu lýkur.