fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Pressan

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Pressan
Fimmtudaginn 26. mars 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skuggaleg mynd úr geimnum vakti mikinn óhug á netinu og voru geimfarar í alþjóðlegu geimstöðinni (ISS) hvattir til að brenna þetta fyrirbæri í snatri.

Á myndinni má sjá fjólubláan egglaga hlut fljóta í þyngdarleysi en úr honum vaxa skuggalegir, loðnir fálmarar. Myndin þótti minna á vísindaskáldskap, geimveru sem er við það að koma öllu í uppnám.

Sem betur fer var þarna engin geimvera á ferðinni heldur ósköp hefðbundin kartafla. Geifarinn Don Pettit kallar kartöfluna Spudnik-1, en hann ræktaði hana um borð í ISS enda mikill áhugamaður um geimgarðyrkju.

„Þetta er ung fjólublá kartafla, með frönskum rennilás til að festa hana í heimatilbúið gróðurhús mitt,“ útskýrir geimfarinn og tekur fram að kartöflur gætu spilað stórt hlutverk þegar mannkynið fer að hætta sér dýpra inn í geiminn, eins og sýnt var í vísindaskáldsögunni Marsbúinn eftir Andy Weir og í samnefndri kvikmynd með leikaranum Matt Damon.

„Kartöflur munu eiga sinn stað í geimkönnunarferðum framtíðarinnar svo ég hugsaði að það væri fyrirtak að hefjast strax handa.“

Netverjum var þó mörgum brugðið yfir myndinni og segja að franski rennilásinn geri kartöfluna ógnvekjandi. Einn lagði til að geimfarinn myndi hreinlega: „Brenndu þetta til dauða“ (e. Kill it with fire).

Aðrir héldu þó ró sinni og vildu gjarnan fræðast um geimgarðyrkju. Veltu þeir því fyrir sér hvernig það er að rækta kartöflur í geimnum samanborið við ræktun á jörðinni og hvernig kartöfluplantan og rætur hennar viti í hvaða átt þær eigi að vaxa í þyngdarleysinu.

Pettit bendir á að rætur vaxi í allar áttir í þyngdarleysinu og að allar plöntur sem hann hefur tæktað í geimnum hafi vaxið mun hægar en þær gera á jörðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana
Pressan
Fyrir 3 dögum

Netáskorun talin hafa orðið 9 ára stúlku að bana

Netáskorun talin hafa orðið 9 ára stúlku að bana
Pressan
Fyrir 3 dögum

Stephen Hawking með dökka spá áður en hann lést – Gæti orðið heimsendir

Stephen Hawking með dökka spá áður en hann lést – Gæti orðið heimsendir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fengu allar tölur réttar í lottóinu og töldu sig hafa unnið 6,2 milljarða – Fengu ekki einn eyri

Fengu allar tölur réttar í lottóinu og töldu sig hafa unnið 6,2 milljarða – Fengu ekki einn eyri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas
Pressan
Fyrir 3 dögum

98% kvenna finnst karlar með þetta áhugamál vera þeir mest aðlaðandi

98% kvenna finnst karlar með þetta áhugamál vera þeir mest aðlaðandi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta er besti tími dagsins, miðað við aldur, fyrir kynlíf

Þetta er besti tími dagsins, miðað við aldur, fyrir kynlíf