fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fókus

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 24. mars 2026 09:30

Baldur Rafn Gylfason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Menn eins og við, sem er nú komið í tíunda þátt, ræða þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason svokölluð „bumbuboltameiðsl“ miðaldra karla. Umræðan er ekki úr lausu lofti gripin því Baldur lenti sjálfur í alvarlegu óhappi nýverið þegar hann sleit hásin á hægri fæti í padel og verður á hækjum næstu átta vikurnar.

Hlaðvarpið Menn eins og við fór af stað sem létt spjall um lífið, karlmennsku, heilsu, vinnu og allt það sem fylgir því að vera kominn á miðjan aldur. Í þáttunum hafa þeir félagar oft tekið fyrir áskoranir, prófað nýja hluti og lagt ýmislegt á sig fyrir efni í þættina. Baldur hefur þar verið sérstaklega duglegur að stökkva til og prófa alls konar, að eigin sögn jafnvel aðeins of duglegur, enda hafa bæði eiginkona hans og samstarfsfólk haft á orði að þetta sé stundum orðið full mikið af því góða.

Í þættinum spyr Einar hann hvað í ósköpunum hann hafi verið að gera með því að láta félagana draga sig í padel. Baldur svarar því einfaldlega: „Sko, padel er víst töff. Það er aðal núna. Já, við reynum allt sem er töff. Já, við verðum að vera það. Það er bara svoleiðis og ef maður er miðaldra, þá gerirðu það bara. No matter what.“

Mynd: Aðsend.
Mynd: Aðsend.

Padel-ævintýrið endaði þó ekki alveg eins og lagt var upp með en þó með sigri. Baldur segir skotið þar sem hann sleit hásin hafa í raun verið sigurskot leiksins. „Við vorum að vinna fyrstu keppnina og þarna vinnum við alveg fyrsta leikinn með þessu skoti. Svo kemur snappið. Ég er að beygja mig eftir boltanum og ég heyri eitthvað slitna. Við unnum samt en ég veit ekki hvort það er átta vikur á hækjum virði,“ segir hann og bætir við að tilfinningin hafi verið mjög skrítin.

Hann lýsir því að hafa bókstaflega heyrt þegar sinin slitnaði. „Maður bara heyrir eitthvað slitna inni í skrokknum. Þú heyrir bara eins og teygju slitna skjótast í rassgatið á þér einhvern veginn,“ segir Baldur í þættinum.

Nú tekur við hvíld og endurhæfing næstu vikurnar á meðan hlaðvarpið heldur áfram líklega með Baldur á hækjum um sinn.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Tvífari Jeffrey Epstein neyðist til að stíga fram og leiðrétta útbreiddan misskilning

Tvífari Jeffrey Epstein neyðist til að stíga fram og leiðrétta útbreiddan misskilning
Fókus
Í gær

Upptaka úr búkmyndavél sýnir hvernig söngvarinn reyndi neyðarlega að koma því til skila að hann væri frægur

Upptaka úr búkmyndavél sýnir hvernig söngvarinn reyndi neyðarlega að koma því til skila að hann væri frægur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sóðaleg leyndarmál búningsherbergisins afhjúpuð – Vinsæll á skjánum en hrotti utan hans

Sóðaleg leyndarmál búningsherbergisins afhjúpuð – Vinsæll á skjánum en hrotti utan hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórstjarna nær óþekkjanleg á tökustað nýrrar sálfræðispennumyndar

Stórstjarna nær óþekkjanleg á tökustað nýrrar sálfræðispennumyndar