fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Fréttir

Hnífaárás í strætisvagni – Myndband náðist af unglingum skera fullorðinn mann

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. mars 2026 12:33

Maðurinn var skorinn á hendi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stunguárás var gerð í strætisvagni í gær. Ágreiningur kom upp á milli fullorðins karlmanns og unglinga sem endaði með því að hann var skorinn á hendi. Lögregla rannsakar málið í samvinnu við barnaverndaryfirvöld.

„Ég get ekki farið út í þetta nema að þarna virðist hafa orðið einhver ágreiningur og átök sem enduðu með þessum hætti,“ segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

DV hefur undir höndum myndband at atvikinu. En á myndbandinu má sjá unglinga öskra að fullorðnum manni á ensku, sem er særður á hendi og augljóslega mjög brugðið. Á gólfi strætisvagnsins er blóð.

Unnið með barnaverndaryfirvöldum

Miðað við það sem heyrist á myndbandinu virðist deilan hafa sprottið upp vegna jakka.

Að sögn Ævars Pálma barst tilkynningin um málið rétt fyrir klukkan 15:00 í gær. Teknar voru skýrslur af aðilum. Hann segir að málið sé nú unnið áfram í samvinnu við barnaverndaryfirvöld. En samkvæmt heimildum DV eru gerendurnir í málinu í 9. bekk grunnskóla.

Maðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Var þar gert að sárum hans á hendi. Ævar Pálmi segist ekki hafa frekari upplýsingar um líðan hans.

Uggur í foreldrum

Myndbandið hefur gengið um netið og uggur er í öðrum foreldrum sem þekkja til gerendanna í málinu.

„Ég á barn sem er í sama skóla og þessi nemandi og er búin að senda þetta í skólann og senda videoið til lögreglunnar. Ég hef miklar áhyggjur af því að þessi nemandi gangi um með hníf í skólanum,“ segir ein móðir í nafnlausri færslu á samfélagsmiðlum í dag.

Farið var með manninn á slysadeild til aðhlynningar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Grasrót Miðflokksins logar og segir Miðflokksmenn sniðgengna í þágu „svikasjalla“ – „Stór mistök“

Grasrót Miðflokksins logar og segir Miðflokksmenn sniðgengna í þágu „svikasjalla“ – „Stór mistök“
Fréttir
Í gær

Gróflega misboðið yfir brandara og söngatriði hjá Gísla Marteini á föstudaginn – „Þetta er alls ekki fyndið. Í alvöru“

Gróflega misboðið yfir brandara og söngatriði hjá Gísla Marteini á föstudaginn – „Þetta er alls ekki fyndið. Í alvöru“