
Hin grunaða, Nicolette Keough, 31 árs, var handtekin eftir að eigandi leiguhúsnæðis lagði fram kæru um miðjan mars. Í frétt People kemur fram að eigandinn hafi kært málið til lögreglu eftir að hafa fengið upplýsingar um að Keough hefði kastað af sér þvagi á fjölda muna í íbúðinni.
Við nánari athugun fann eigandinn myndskeið sem sýndu konu, sem sögð er vera Keough, fremja verknaðinn. Myndböndin höfðu verið birt á vefsíðu með efni fyrir fullorðna. Þá tilkynnti eigandinn einnig að sterk þvaglykt hefði verið í íbúðinni eftir dvöl hennar.
Lögregla segir að sambærilegt atvik hafi átt sér stað í öðru Airbnb-húsnæði í eigu sama aðila í sömu götu. Samkvæmt lögregluskýrslu skemmdust meðal annars stóll, teppi, ritvél, borðstofustólar, kaffivél, rúm, sjónvarp, plötuspilari og brauðrist.
Talsmaður lögreglunnar í Pensacola sagði í yfirlýsingu að Keough hefði verið handtekin vegna gruns um alvarleg eignaspjöll þar sem tjónið væri talið nema meira en 3.000 Bandaríkjadölum. Konan er talin hafa tekið myndböndin upp í þeim tilgangi að selja þau til áhugasamra.
Nicolette hefur verið látin laus gegn tryggingu, að því er segir í frétt People.
Talsmaður Airbnb fordæmdi málið í samtali við miðilinn og tók fram að hin grunaða hefði verið útilokuð frá því að leigja aftur íbúðir í gegnum fyrirtækið. Þá sagði hann að Airbnb vinni nú að því að aðstoða eigandann við að fá tjónið bætt.