fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Pressan

Dularfull veðmál í kringum drápið á Khameini og ránið á Maduro – Græddu þeir milljónir á innherjaupplýsingum?

Pressan
Föstudaginn 20. mars 2026 17:00

Kallað hefur verið eftir hertri löggjöf vegna málsins. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Töluverð umræða hefur skapast í Bandaríkjunum eftir að í ljós kom að óþekktir aðilar græddu háar fjárhæðir á veðmálum sem tengdust meðal annars ráninu á Nicolas Maduro, forseta Venesúela, og drápinu á Ali Khameini, æðsta klerki Írans.

Hefur málið vakið upp spurningar um hvort einstaklingar innan bandaríska stjórnkerfisins eða hersins hafi nýtt aðgang að trúnaðarupplýsingum sér í hag og hvort gildandi lög nái að halda utan um ört vaxandi spámarkaði á netinu.

Í frétt Mail Online kemur fram að í þessum tilvikum hafi veðmálin farið fram á Polymarket þar sem veðjað var meðal annars á að forseta Venesúela yrði komið frá völdum og að hernaðaraðgerðir myndu hefjast gegn Íran. Þar sem viðskipti fara fram með rafmyntum er erfitt að rekja hverjir standa að baki einstökum veðmálum.

Í sumum tilvikum voru veðmál sett aðeins nokkrum klukkustundum áður en aðgerðir hófust. Einn notandi á Polymarket er sagður hafa stofnað reikning og lagt 34 þúsund dollara undir á að Maduro yrði komið frá. Þessi sami einstaklingur er sagður hafa grætt um 400 þúsund dollara á veðmálinu. Athygli vekur að umræddur notandi var tiltölulega nýbúinn að stofna aðganginn og hafði ekki veðjað á Polymarket áður.

Þá er talið að að minnsta kosti sex einstaklingar hafi hagnast um samanlagt 1,2 milljónir dala með veðmálum sem tengdust mögulegri árás Bandaríkjahers á Íran. Annar er sagður hafa grætt 500 þúsund dollara.

Þessar upplýsingar hafa orðið til þess að bandarískir þingmenn, einkum úr röðum Demókrata, hafa kallað eftir skýrari reglum um starfsemi spámarkaða. Þeir telja að veruleg hætta geti skapast ef einstaklingar með aðgang að viðkvæmum upplýsingum nýti sér slíkan vettvang til fjárhagslegs ávinnings. Fulltrúar Hvíta hússins hafa hins vegar hafnað því að aðilar tengdir forsetanum hafi átt hlut að máli.

Polymarket er skráð fyrirtæki í New York, en rekstur helsta veðmálavettvangs þess fer fram á netþjónum utan Bandaríkjanna. Af þeim sökum fellur starfsemin að hluta utan þeirra reglna sem kveða á um að fjármálafyrirtæki skuli staðfesta deili á viðskiptavinum sínum.

Spámarkaðir á borð við Polymarket hafa notið vaxandi vinsælda vestanhafs á undanförnum árum. Áætlað er að bandarískir notendur hafi lagt undir um 44 milljarða dala undir í slíkum veðmálum á síðasta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tekinn af lífi fyrir svívirðilegan glæp – „Loksins er þessu lokið“

Tekinn af lífi fyrir svívirðilegan glæp – „Loksins er þessu lokið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ísraelsmenn drápu yfirmann öryggisráðs Írans í nótt – Hótaði Trump í síðustu viku

Ísraelsmenn drápu yfirmann öryggisráðs Írans í nótt – Hótaði Trump í síðustu viku
Pressan
Fyrir 3 dögum

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar